Sala í bakaríum Brauðs & co nær tvöfaldaðist frá fyrra ári og nám á síðasta ári 408 milljónum króna. Áður var hún 207 milljónir. Hagnaður bakaríanna var um 24,7 milljónir í fyrra og dróst saman um 2,4 milljónir á milli ára. Þetta má sjá í ársreikningi félagsins en Fréttablaðið greindi fyrst frá.
Brauð og co ehf. rekur fimm bakarí á höfuðborgarsvæðinu. Fyrsta verslunin var opnuð á Frakkastíg í byrjun árs 2016. Þá eru hinar verslanirnar staðesttar í Mathöllinni við Hlemm og í Fákafeni, auk þess sem á þessu áru opnuðu tvö ný Brauð & co bakarí annars vegar á Melhaga og hins vegar við Akrabraut í Garðabæ.
Rekstrargjöld félagsins voru um 379 milljónir í fyrra borið saman við 173 milljónir árið áður. Eignir námu tæplega 139 milljónum í lok síðasta árs samanborið við 90 milljónir í lok árs 2016. Eigið fé félagsins var um 82 milljónir í lok árs 2017 og námu skuldirnar á sama tíma um 57 milljónum.
Stærsti hluthafi Brauðs og co ehf. er Eyja fjárfestingafélag, í eigu Birgis Þórs Bieltvedt og Eyglóar Bjarkar Kjartansdóttur, með 51 prósents hlut. Lúkas ehf. á 31 prósents hlut í félaginu og Nói Nóra ehf. 18 prósent.