Kylie Cosmetics nær tvöfalt verðmætara en Icelandair

Fyrirtæki tvítugu raunveruleikastjörnunnar Kylie Jenner er metið á tæplega 86 milljarða íslenskra króna, en það er nær tvöfalt meira en markaðsvirði Icelandair.

Kylie Jenner, eigandi Kylie Cosmetics.
Kylie Jenner, eigandi Kylie Cosmetics.
Auglýsing

Snyrti­vöru­fyr­ir­tæki Kylie Jenner er nær tvö­falt verð­mæt­ara en Icelanda­ir, en Jenner á 100% í fyr­ir­tæk­inu. Til við­bótar við samn­inga við önnur fyr­ir­tæki og sjón­varps­tekjur er Jenner sjálf metin á nær 100 millj­arða íslenskra króna.

Í umfjöllun tíma­rits­ins For­bes um Jenner er farið yfir árangur snyrti­vöru­fyr­ir­tækis henn­ar, Kylie Cosmet­ics, sem hóf störf fyrir tveimur árum síðan með sölu á svoköll­uðu „vara­setti“ (e. lip kit) sem sam­an­stóð af vara­lit og vara­blý­anti. Sölu­verð­mæti fyr­ir­tæk­is­ins nemur nú meira en 630 millj­ónum Banda­ríkja­dala, þar af 330 millj­ónum árið 2017, en það hefur síðan bætt við sölu á ann­ars konar snyrti­vörum, líkt og augnskugga og hylj­ara. 

Sam­kvæmt reikn­ingum For­bes er Kylie Cosmet­ics metið á tæp­lega 800 milljón Banda­ríkja­dala, en það jafn­gildir um 85 millj­arða íslenskra króna. Væri fyr­ir­tækið skráð í Kaup­höll Íslands væri það þriðja verð­mætasta fyr­ir­tækið þar, á eftir Marel og Arion banka. Til sam­an­burðar er mark­aðsvirði Icelandair í 47 millj­örðum íslenskra króna, og er því Kylie Cosmet­ics tæp­lega tvö­falt verð­mæt­ara. 

Auglýsing

Ein­ungis fimm starfs­menn

Rekstur snyrti­vöru­fyr­ir­tæk­is­ins reiðir sig mjög mikið á útvistun vinnu­afls, en ein­ungis fimm starfs­menn vinna þar í fullri vinnu auk tólf ann­arra í hluta­vinnu. Vöru­vinnslu og pökkun er útvi­stað til fyr­ir­tæk­is­ins Seed Beauty og vef­fyr­ir­tækið Shopify sér um sölu var­anna. Fjár­mál fyr­ir­tæk­is­ins og mark­aðs­setn­ing er svo í höndum móður Kylie, Kris Jenn­er. Sam­kvæmt For­bes gerir kostn­að­ar­upp­bygg­ingin fyr­ir­tæk­inu kleift að hagn­ast gíf­ur­lega, en hagn­að­ur­inn fer allur beint í vasa Jenner þar sem hún á 100% í fyr­ir­tæk­in­u. 

Til við­bótar við arð­inn sem hún hefur tekið úr fyr­ir­tæki sínu, tekjur úr sjón­varps­þáttum auk tekna sem hún fær fyrir að kynna aðrar vörur líkt og Puma skó og PacSun fatnað er Jenner metin á um 900 milljón Banda­ríkja­dala, eða um 96 millj­arða íslenskra króna. Með því er hún orðin yngsti ein­stak­lingur á lista For­bes yfir rík­ustu konur heims­ins á eigin verð­leik­um, en Jenner verður 21 árs í haust.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent