Smáralind ehf., sem er dótturfélag fasteignafélagsins Regins, var í héraðdómi í gær sýknað af öllum kröfum Norðurturnsins hf., en Norðurturninn er staðsettur beint á móti Smáralind, en Norðurturn hafði gert kröfu um viðurkenningu á samnýtingu bílastæða, fráveitulagna og gagkvæman umferðarrétt á lóð Hagasmára 1 (Smáralind) og að sú kvöð veiti Norðurturninum rétt til nýtingar á bílastæðum á lóðinni.
Landsréttur hafði áður snúið við úrskurði Héraðsdóms Reykjaness um frávísun málsins og tók dómurinn því nú efnislega afstöðu í málinu.
Kröfum Norðurturnsins á hendur Kópavogsbæ um að deiliskipulag Smárans vestan Reykjanesbrautar yrði fellt úr gildi var vísað frá dómi.
Segir dómurinn að ekkert í gögnum málsins styðji þá fullyrðingu Norðurturnsins að samið hafi verið um gagnkvæma samnýtingu bílastæða á lóðunum Hagasmára 1 og 3. Þvert á móti hafi hluti söluverðs lóðarinnar Hagasmára 3, og eitt af skilyrðum fyrir sölunni verið, að gerður yrði samningur þar sem meðal annars kæmi fram að hluti af söluverðinu væri afnotaréttindi Smáralindar af bílastæðum í bílastæðahúsi Norðurturnsins.
Norðurturninum var gert að greiða hvorum aðila 3 milljónir króna í málskostnað. Ekki liggur fyrir hvort dóminum verði áfrýjað af hálfu Norðurturnsins. Í samræmi við fyrri upplýsingar þá hefur niðurstaða dómsmálsins óverulega fjárhagslega þýðingu fyrir félagið.