Brexit-herferðin braut kosningalög

Kosningaherferð aðskilnaðarsinna í þjóðaratkvæðagreiðslu Bretlands um útgöngu úr Evrópusambandinu árið 2016 hefur verið dæmd fyrir brot á kosningalögum.

Boris Johnson og Michael Gove, tveir talsmenn Vote Leave.
Boris Johnson og Michael Gove, tveir talsmenn Vote Leave.
Auglýsing

Kosn­inga­her­ferðin sem hvatti til útgöngu Bret­lands úr Evr­ópu­sam­band­inu var sektað um 61 þús­und pund vegna brota á breskum kosn­inga­lögum fyrir Brex­it-­þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­una árið 2016. Þetta kemur fram í frétt BBC.

Upp komst um brotið í kjöl­far rann­sóknar kosn­inga­skrif­stofu breska þings­ins, en hún gegnir eft­ir­lits­hlut­verki í kringum kosn­ingar þar í landi. Skrif­stofan sagði her­ferð­ina, sem kall­aði sig Vote Lea­ve, hafa fjár­magnað bar­átt­una að hluta til með óskráðu fé í gegnum félaga­sam­tökin BeLea­ve.

Hámark skráðra fjár­fram­laga í Brex­it-­þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unni í Bret­landi, þar sem kosið var um útgöngu Bret­lands úr Evr­ópu­sam­band­inu, nam sjö millj­ónum punda fyrir hvora fylk­ingu. Sam­kvæmt rann­sókn kosn­inga­skrif­stof­unnar runnu hins vegar tæp 680.00 pund til við­bótar frá BeLeave til kanadískrar mark­aðs­skrif­stofu sem ann­að­ist kosn­inga­her­ferð aðskiln­að­ar­sinna. 

Auglýsing

Þessi upp­hæð kom upp­haf­lega frá Vote Lea­ve-her­ferð­inni, en hún hefur áður haldið því fram að BeLeave væru algjör­lega óháð sam­tök og því ekki háð sjö millj­óna punda tak­mörkum þeirra. 

„Með öllu óná­kvæm“

Kosn­inga­skrif­stofan úrskurð­aði hins vegar að BeLeave hafi rang­lega til­kynnt umrædda 680.000 punda færslu sem sína eigin auk þess sem sam­tökin hafa rofið 10.000 punda hámark sem óskráð her­ferð kosn­inga­bar­átt­unn­ar. Vote Leave segir rann­sókn­ina „með öllu óná­kvæma“ og unna í póli­tískum til­gang­i. 

Kanadíska mark­aðs­fyr­ir­tækið sem fékk umrædd fjár­fram­lög not­aði þau í aug­lýs­ingar á Facebbook, en sam­kvæmt BBC er ómögu­legt að segja til um hversu stór áhrif þau höfðu á nið­ur­stöður þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unn­ar. 

Nið­ur­stöður atkvæða­greiðsl­unn­ar, þar sem 51,9% kjós­enda kusu með útgöngu Breta úr Evr­ópu­sam­band­inu, voru ein­ungis ráð­gef­andi, sam­kvæmt dómi hæsta­réttar Bret­lands fyrir tæpum tveimur árum síð­an. Vegna þess getur eng­inn dóm­stóll kallað eftir nýrri atkvæða­greiðslu, ein­ungis rík­is­stjórnin gæti gert það með sam­þykki þings­ins. 

Skipu­lögð útganga Bret­lands úr Evr­ópu­sam­band­inu er þann 29. mars á næsta ári.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent