Tollastríðið lækkar olíuverð og norsku krónuna

Tollastríð Bandaríkjanna við helstu viðskiptaþjóðir þeirra hefur leitt til lægri verðs á hrávörum sem og veikingu gengis norsku krónunnar.

Norska hagkerfið finnur fyrir viðskiptastríði Bandaríkjanna við Rússland, Evrópusambandið og Kína.
Norska hagkerfið finnur fyrir viðskiptastríði Bandaríkjanna við Rússland, Evrópusambandið og Kína.
Auglýsing

Við­skipta­stríð Banda­ríkj­anna við Evr­ópu­sam­band­ið, Rúss­land og Kína hefur leitt til lægra olíu­verðs og aukið óvissu á hluta­bréfa-og gjald­eyr­is­mörk­uð­um. Sam­hliða því hefur norska krónan veikst tölu­vert, en búist er við áfram­hald­andi veikri stöðu gjald­mið­ils­ins á meðan á tolla­stríð­inu stend­ur. Þetta kemur fram í fréttum For­bes og Dag­ens Nær­ingsliv.

Lægra olíu­verð 

Helstu áhrif við­skipta­stríðs land­anna tveggja hingað til hefur verið kólnun á kín­verskum hluta­bréfa­mark­aði. Versn­andi rekstr­ar­skil­yrði kín­verskra fyr­ir­tækja gæti leitt til Þar sem Kína er einn stærsti olíu­neyt­andi á heims­vísu mynd­i vænt­ur ­sam­dráttur þar í landi leiða til mik­illar eft­ir­spurn­ar­minnk­unar á hrá­vör­um. Þessi ótti hefur þegar fælt fjár­festa frá olíu­fé­lög­um, en olíu­verð hefur farið lækk­andi frá byrjun júlí. Ótt­ast er að tolla­stríðið farið harðn­andi á næst­unni, en Banda­ríkja­for­seti hót­aði frek­ari tollum á Kína í við­tali við CN­BC í síð­ustu viku. 

Vernd­ar­stefna Banda­ríkj­anna í alþjóða­við­skiptum hefur leitt til tolla­lagn­ingar á fjöl­mörgum vörum í Evr­ópu, Kína, Rúss­landi og Banda­ríkj­un­um. Í lok maí setti rík­is­stjórn­ Trumps á ál-og ­stál­tolla á Evr­ópu­sam­bandið og Rúss­landi, en báðir aðilar svör­uðu í sömu mynt og lögðu tolla á banda­rískar útflutn­ings­vör­ur. 

Auglýsing

For­bes ­nefnir hins vegar að aðrir þættir hafi einnig leitt til­ ol­íu­verð­lækk­unn­ar ­síð­ustu vikna, líkt og yfir­lýs­ing OPEC-­ríkja um aukna fram­leiðslu, auk fram­leiðslukipps leir­steinsolíu í Banda­ríkj­un­um. 

Álverðið lækk­ar 

­Olía er ekki eina hrá­varan sem hefur orðið fyrir barð­inu á við­skipta­stríð­inu, en heims­mark­aðs­verð á áli hefur einnig farið lækk­andi frá inn­leið­ingu áltolla Banda­ríkj­anna í lok maí. Kjarn­inn fjall­aði einnig nýlega um versn­and­i ­rekstr­ar­nið­ur­stöð­u álfyr­ir­tæk­is­ins Alcoa í kjöl­far áltolla í lok maí, en hluta­bréfa­verð fyr­ir­tæk­is­ins féllu eftir að það lækk­aði afkomu­spá sína fyrir árið um 14%. 

Norska krónan veikst

Sam­hliða verð­lækkun á hrá­vörum hefur norska krónan veikst tölu­vert. Sam­kvæmt við­mæl­anda norska við­skipta­blaðs­ins Dag­ens Nær­ingsli­v (DN) hefur við­skipta­stríðið einnig haft bein áhrif á gengi krón­unn­ar, en aukin óvissa á mörk­uðum hefur hindrað nýjar fjár­fest­ingar til skamms tíma og haft nei­kvæð áhrif á hluta­bréfa-og gjald­eyr­is­mark­að­inn. Í við­tali við DN telur við­mæl­and­inn að norska krónan muni hald­ast veik nokkurn tíma og gæti jafn­vel veikst enn meira, þar sem mögu­legt er að við­skipta­stríðið muni harðna á næstu vik­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent