Lægra hlutafé og kaup á eigin bréfum Eimskipa

Samþykkt var á hluthafafundi Eimskipa að hlutafé félagsins yrði lækkað auk þess sem stjórnin mætti kaupa eigin bréf upp að 18 milljónum að nafnvirði.

vestmannaeyjar_20282969745_o.jpg
Auglýsing

Hlut­hafar í Eim­skipa­fé­lagi Íslands sam­þykktu í gær að lækka hlutafé félags­ins um 13 millj­ónir króna og heim­il­uðu kaup á eigin bréfum upp að 4,3 millj­arða að gang­virði. Þetta kemur fram í nið­ur­stöðum hlut­hafa­fundar Eim­skipa sem hald­inn var í gær eft­ir­mið­dag og birtur á vef Kaup­hall­ar­inn­ar.

Á fund­inum voru tvær til­lögur bornar fram, ann­ars vegar um lækkun hluta­fjár og hins vegar um kaup á eigin hlut­um. Báðar voru þær sam­þykkt­ar, en sam­kvæmt þeirri fyrri verður hlutafé félags­ins lækkað úr 200 millj­ónum króna niður í 187 millj­ónir króna. Sam­þykkt til­lög­unar veltir þó á hvort félagið fái und­an­þágu frá inköll­un­ar­skyldu frá stjórn­völd­um, en ann­ars þarf fyr­ir­huguð lækkun að birt­ast í Lög­birt­inga­blað­inu.

Seinni til­lagan sem lögð var fram á fund­inum snýr að kaupum á eigin bréf­um, en sam­þykkt var að stjórn félags­ins gæti eign­ast eigin hluti að and­virði allt að 18 millj­óna króna að nafn­virði, sem sam­sa­vara um 4,3 millj­örðum að gang­virði, innan næstu 18 mán­aða. Heim­ildin tak­markast þó við að eign­ar­hald félags­ins og dótt­ur­fé­laga þess fari ekki umfram 10% af heild­ar­hlutafé félags­ins á hverjum tíma. Með þessarri til­lögu falla jafn­framt aðrar heim­ildir til kaupa á eigin bréfum niður innan fyr­ir­tæk­is­ins.

Auglýsing

Ris eftir kaup Sam­herja

Kjarn­inn fjall­aði nýlega um umsvifa­mikil eig­enda­skipti í Eim­skip­um, en syst­ur­fé­lag Sam­herja keypti 25,3% hlut í félag­inu á 11 millj­arða íslenskra króna af banda­ríska fjár­fest­inga­sjóðnum Yucaipa. Í kjöl­far kaupanna hækk­uðu hluta­bréf Eim­skips tölu­vert, en hluta­bréfa­verð Eim­skips hefur nú hækkað um 17% frá til­kynn­ing­unni um kaup Sam­herja þann 19. júní síð­ast­lið­inn. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent