Verkföll skerða flugumferð um alla Evrópu

Verkföll meðal starfsmanna flugfélaga og flugumferðarstjóra hafa raskað flugumferð um alla Evrópu það sem af er ári. Hagsmunasamtök flugfélaga segja tjónið vera gríðarlegt, en meðal krafna verkalýðsfélaganna eru launuð veikindaleyfi.

Flugmenn, flugfreyjur og flugþjónar Ryanair eru ekki sáttir með kjörin sín.
Flugmenn, flugfreyjur og flugþjónar Ryanair eru ekki sáttir með kjörin sín.
Auglýsing

Flug­menn og flug­um­ferð­ar­stjórar í Evr­ópu hafa reglu­lega lagt niður störf það sem af er ári, en talið er að áætl­anir millj­ónir ferða­manna hafi raskast vegna þeirra auk þess sem vænta má fleiri verk­falla. Sam­kvæmt hags­muna­sam­tökum flug­fé­laga er tjón vegna verk­fall­anna gríð­ar­legt og nemur millj­örðum evra, en verka­lýðs­fé­lögin segja launað veik­inda­leyfi og aflétt­ing á ströngum sölu­skil­yrðum vera meðal meg­in­mark­miða starfs­mann­anna.

Hrina verk­falla hjá Ryanair

Sam­kvæmt frétt Even­ing Stand­ard aflýsti írska flug­fé­lag­ið Ryana­ir 24 flugum til og frá Írlands síð­asta föstu­dag vegna verk­falls flug­manna félags­ins. Verk­föllin munu svo halda áfram í dag, en flug­freyjur og flug­þjónar munu einnig leggja niður störf í Belg­íu, Portú­gal og á Spáni í dag og á morg­un.

Michael O'Leary, framkvæmdastjóri RyanairFlug­fé­lagið hefur orðið fyrir tíðum verk­föllum eftir að hafa ákveðið að sam­þykkja myndun verka­lýðs­fé­laga starfs­manna sinna í des­em­ber á síð­asta ári. Enn fremur hafa verk­föll flug­um­ferð­ar­stjóra ­leitt til aflýs­ingar á 2.500 flugum hjá félag­inu á fyrsta árs­fjórð­ungi árs­ins. Á sama tíma lækk­aði hlut­fall stund­vísra flug­a Ryana­ir svo úr 89% niður í 75%. Fram­kvæmda­stjóri félags­ins, Michael O‘­Le­ary, hefur hótað að segja upp starfs­mönnum sínum ef verk­föllin halda áfram. Hann segir hætta á að vetr­ar­á­ætlun flug­fé­lags­ins rask­ist vegna verk­fall­anna, „sem gæti leitt til minnk­unar flot­ans á við­eig­andi flug­völlum auk upp­sagna,“ sam­kvæmt F­in­anci­al Times.

Auglýsing

O‘Le­ar­y er þó sér­stak­lega í nöp við flug­um­ferð­ar­stjóra, en hann sagði þá hafa valdið „áætl­unum flug­fé­lög­unum viða­miklum skaða“ og kall­aði þá „verstu lög­brjót­ana.“ O‘­Le­ar­y hefur nú þegar sagst munu leggja fram form­lega kvörtun til Fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins vegna Franskra flug­um­ferð­ar­stjórar sem voru í verk­falli níu helgar á fyrsta árs­fjórð­ung­i. 

13,4 millj­arða evra tjón síðan 2010

Hags­muna­sam­tökin Air­lines ­for E­urope sendu svo frá sér frétta­til­kynn­ingu í dag, en sam­kvæmt henni hafa flug­um­ferð­ar­stjórar í Evr­ópu lagt niður störf í 29 daga á fyrstu sex mán­uðum árs­ins, þar sem 22 þeirra voru í Frakk­landi. Sam­tökin telja aflýs­ing­arnar hafa haft áhrif á millj­ónir ferða­manna og lýsa þau yfir áhyggjum af því fjár­hagstjóni sem verk­föllin kunna að bera með sér nú á háanna­tíma ferða­þjón­ust­unn­ar. Sam­tökin vitna einnig í nýrri skýrslu sem PriceWa­ter­hou­seCooper vann fyrir þau, en þar er efna­hags­legt tjón flug­verk­falla á síð­ustu átta árum metið á 13,4 millj­arða evra.

Ólaunað veik­inda­leyfi og sölu­mark­mið á skaf­miðum

Sam­kvæmt regn­hlíf­ar­sam­tökum verka­lýðs­fé­laga starfs­manna í sam­göng­um, ITF, snú­ast verk­föll starfs­manna Ryana­ir ­meðal ann­ars um að geta fengið launað veik­inda­leyfi og þurfa ekki að fylgja hörðum sölu­mark­mið­u­m. The Gu­ar­di­an ­greindi frá þessum sölu­mark­miðum í fyrra, en sam­kvæmt þeim varð starfs­mönnum fyr­ir­tæk­is­ins refsað ef þeir náðu ekki að selja ákveðið magn af ilm­vatni og skaf­mið­um.

Sam­kvæmt frétt The Independent snýst kjara­bar­átta flug­manna Ryanair hins vegar um við­ur­kenn­ingu á starfs­reynslu, launað sum­ar­leyfi og flutn­ingur starfs­manna milli evr­ópskra og Norð­ur­-a­frískra flug­stöðva.

ITF segir starfs­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa unnið við þessar aðstæður of lengi án þess að nein breyt­ing hafi orðið þar á, þrátt fyrir yfir­lýs­ingar fyr­ir­tæk­is­ins um að svo muni verða. Ryana­ir ­gerir hins vegar lítið úr kröf­um IT­F og kallar þær „til­gangs­laus­ar,“ auk þess sem félagið bendir á marg­vís­leg fríð­indi sem starfs­menn þess njóta. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent