Bubbi dæmdur fyrir meiðyrði

Steinar Berg Ísleifsson vann í dag meiðyrðamál gegn Bubba Morthens og RÚV fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. Sjö mismunandi ummæli Bubba um Steinar voru dæmt dauð og ómerk og honum og RÚV gert að greiða Steinari 250 þúsund krónur hvor í miskabætur.

Bubbi Morthens
Auglýsing

Steinar Berg Ísleifs­son vann í dag meið­yrða­mál gegn Bubba Morthens og RÚV fyrir Hér­aðs­dómi Reykja­vík­ur. Sjö mis­mun­andi ummæli Bubba um Steinar voru dæmt dauð og ómerk og honum og RÚV gert að greiða Stein­ari 250 þús­und krónur hvor í miska­bætur með drátt­ar­vöxt­um.

Rík­is­út­varp­inu er óheim­ilt sam­kvæmt dómnum að sýna eða birta með nokkrum hætti þátt­inn þar sem hluti ummæl­anna var lát­inn falla í þátta­röð­inni Popp- og rokksaga Íslands árið 2016. Skal RÚV einnig greiða Stein­ari 250 þús­und í miska­bæt­ur. Þá er stofn­un­inni skylt að birta dóms­orðin í dag­skrá sjón­varps­ins og for­send­ur, sem og á ruv.is innan tveggja vikna. Bubbi og RÚV greiða einnig 2 millj­ónir í máls­kostn­að.

Í þátt­unum sagði Bubbi að Steinar Berg, sem var útgef­andi platna Utan­garðs­manna, hefði „mok­grætt“ á honum í upp­hafi fer­ils og „nýtt sér reynslu­leysi“ þeirra, „þekk­ing­ar­leysi“ og „yf­ir­burða­stöð­u“.

Auglýsing

Þá komu í kjöl­far þátt­ar­ins ummæli á Face­book sem einnig eru dæmd dauð og ómerk, sem og ummæli við fréttir ann­arra miðla um mál­ið.

Í nið­ur­stöðu hérð­asdóms segir meðal ann­ars: „Dóm­ur­inn telur að með þess­ari nið­ur­stöðu sé tján­ing­ar­frelsi stefnda Ásbjörns ekki skert umfram það sem er nauð­syn­legt til verndar mann­orði stefn­anda enda hefur stefndi hvorki fært sönnur á neina þeirra full­yrð­inga sem fel­ast í þeim ummælum hans sem hafa verið ómerkt né fært fram neina rétt­læt­ingu fyrir því að hafa vegið á þennan hátt að æru stefn­anda. Að mati dóms­ins hafði stefndi Ásbjörn ekki heldur ástæðu til að ætla að full­yrð­ingar hans um mein­tan refsi­verðan verknað stefn­anda væru rétt­ar. Hann gat ekki „verið í góðri trú“ eins og það er kall­að. Ummæli hans eru því ekki heldur innan marka tján­ing­ar­frelsis hans af þeim sök­um.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent