Airbnb-gistingum fækkar um fjórðung í Reykjavík

Óskráðum gistingum sem greiddar eru í gegnum vefsíður fækkaði um 26 prósent milli júnímánaða í ár og í fyrra. Á landsvísu nam fækkunin 19 prósentum á sama tímabili.

Umsvif Airbnb gistinga hefur stórminnkað í Reykjavík miðað við í fyrra
Umsvif Airbnb gistinga hefur stórminnkað í Reykjavík miðað við í fyrra
Auglýsing

Áætl­aðar óskráðar gistinætur í gegnum vef­síður á borð við Air­bnb og Homeaway voru 19% færri síð­ast­lið­inn júní heldur en á sama tíma í fyrra. Mesta breyt­ingin er á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, en þar er áætlað að gistin­óttum hafi fækkað um 26% á tíma­bil­inu. Þetta kemur fram þegar rýnt er í nýbirtar tölur Hag­stofu.

Kjarn­inn fjall­aði í gær um töl­urn­ar, en sam­kvæmt þeim fækk­aði skráðum gistin­óttum erlendra ferða­manna milli júní­mán­aða 2017 og 2018, en það er í fyrsta skipti sem slíkt ger­ist í heilan ára­tug. Fækk­unin var líka sú mesta sem mælst hefur hjá Hag­stof­unni, en töl­urnar ná aftur til árs­ins 1998. 

Umræddar tölur ná hins vegar ekki til óskráðra gist­inga, líkt og heimagist­ingar í kringum vef­síð­urnar Air­bnb og Homeaway. Frá byrjun síð­asta árs hefur Hag­stofa hins vegar áætlað umfang slíkra óskráðra gist­inga, en það gerir hún með hjálp gistin­átta­taln­ing­ar­innar auk nið­ur­staðna úr landamæra­rann­sókn erlendra ferða­manna sem fram­kvæmd er í Flug­stöð Leifs Eiríks­son­ar. 

Auglýsing

19 pró­senta fækkun á Íslandi

Sam­kvæmt áætl­unum Hag­stofu voru óskráðar gistinætur sem greiddar voru í gegnum vef­síður um 191 þús­und tals­ins í júní síð­ast­liðn­um. Þetta er 19% færri gist­ingar en áætl­aðar voru fyrir júní 2017, en þá var talið að þær næmu 234 þús­und­um. 

Hins vegar er breyt­ingin milli júní­mán­aða mis­jöfn eftir lands­hlut­um. Til að mynda juk­ust óskráðar gist­ingar um 6 pró­sent á Vest­ur­landi og dróg­ust lít­il­lega saman um 3 pró­sent á Aust­ur­landi. Á Suð­ur­landi og Norð­ur­landi vestra dróg­ust þær einnig saman um 5-6 pró­sent, en sam­drátt­ur­inn nam 10 pró­sentum á Suð­ur­nesjum og 14 pró­sentum á Norð­ur­landi eystra.  Á Vest­fjörðum fækk­aði óskráðum gist­ingum um 18 pró­sent, en mest var fækk­unin á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þar sem hún nam rúmum 26 pró­sentum milli júní­mán­aða 2017 og 2018. 

Hefur áhrif á fast­eigna­verð

Mikið hefur verið rætt um áhrif Air­bnb á leig­u-og gisti­markað hér á landi, en sam­kvæmt skýrslu Íslands­banka sem birt var í apríl síð­ast­liðnum er talið að hlut­deild vef­síð­unnnar á gisti­þjón­ustu­mark­aði nemi um 30 pró­sent­um. Hlut­deildin hefur vaxið hratt á und­an­förnum árum, en Íbúða­lána­sjóður ályktaði í skýrslu sinni fyrr í sumar að svokölluð Air­bn­b-væð­ing ferða­þjón­ust­unnar hafi aukið við­náms­þrótt grein­ar­innar gagn­vart ytri áföllum á kostnað stöð­ug­leika á íbúða­mark­aði. Þar að auki taldi sjóð­ur­inn aukin skamm­tíma­leiga í gegnum heima­síð­una hafa haft tölu­verð áhrif  á hækkun fast­eigna­verðs hér­lendis á árunum 2015-2017. 

„Ör­ygg­is­ventill“ fyrir ferða­manna­iðn­að­inn

Hag­fræð­ingur á vegum OECD sagði heimagist­ingu, eins og þá sem Air­bnb býður upp á, vera heppi­lega fyrir íslenska hag­kerfið á blaða­manna­fundi í fyrra. Sam­kvæmt honum virk­uðu Air­bn­b-g­ist­ingar eins og „ör­ygg­is­ventill“ fyrir ferða­manna­iðn­að­inn, þar sem sveigj­an­legt eðli hennar geri ferða­þjón­ust­una betur í stakk búna til að taka á móti breyti­legum fjölda ferða­manna. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent