Stjórnarandstöðuflokkarnir í borgarstjórn Reykjavíkur, Sjálfstæðisflokkurinn, Miðflokkurinn, Flokkur fólksins og Sósíalistaflokkurinn, og formaður VR, Ragnar Þór Ingólfsson, lýsa yfir áhyggjum af þekkingarleysi formanns velferðarráðs Reykjavíkur og varaformanns Samfylkingarinnar, Heiðu Bjargar Hilmisdóttur, á húsnæðismarkaðnum í Reykjavík.
Þetta kemur fram í sameiginlegri yfirlýsingu stjórnarandstöðuflokkanna í borgarstjórn Reykjavíkur og formanns VR sem þau sendu frá sér í dag.
Tilefnið er ummæli hennar í þættinum Vikulokunum á Rás 1 í morgun, þar sem hún sagði 1000 íbúðir í byggingu á vegum óhagnaðardrifinna leigufélaga. Í yfirlýsingunni segir að þetta sé rangt. „Hið rétta er að 256 íbúðir, svo vitað sé, eru í byggingu á vegum óhagnaðardrifinna leigufélaga í Reykjavík og hefur borgin gefið út 551 byggingarleyfi til handa slíkum leigufélögum, sem er víðs fjarri þeim 1000 íbúðum sem formaður velferðarráðs, Heiða Björg Hilmisdóttir, heldur fram að séu í byggingu.“
Þá hafnaði formaður velferðarráðs jafnframt þeirri staðreynd að byggingaréttargjald hefði áhrif á leiguverð í Reykjavík. Stjórnarandstaðan og Ragnar Þór benda aftur á móti á að byggingarréttargjaldið, sem er 45.000 kr. á hvern fermetra, valdi verulegum töfum á byggingu leiguíbúða í Reykjavík en gjaldið leggst á leiguverð sem eykur greiðslubyrði leigjanda til muna og getur gjaldið numið hundruðum þúsunda árlega fyrir hverja íbúð.
„Þessi ummæli formanns velferðarráðs undirstrika skilningsleysið á þeim brýna húsnæðisvanda sem er í Reykjavík. Stjórnarandstöðuflokkarnir í borgarstjórn Reykjavíkur, hafa nú þegar lagt fram tillögur til lausnar vandans en þær tillögur hafa því miður ekki náð fram að ganga. Stjórnarandstöðuflokkarnir og formaður VR skora á meirihlutaflokkana í borginni að bregðast við vandanum með því að taka undir tillögur stjórnarandstöðuflokkanna í húsnæðismálum,“ segir í yfirlýsingunni.