Yfir 155 milljónir hafa safnast í hlaupastyrk til góðra málefna í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka sem fór fram síðustu helgi. Þetta er töluverð aukning frá fyrra ári þegar söfnuðust 118 milljónir.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íslandsbanka.
Þátttakendur í hlaupinu voru um 14.000 og hafa aldrei eins margir tekið þátt í 10 og 3 kílómetra hlaupi.
Íslandsbanki er samstarfsaðili hlaupsins sem haldið er af Íþróttabandalagi Reykjavíkur nú í 35. sinn. Hlaupastyrkurinn rennur óskertur til góðgerðarfélaganna sem eru 180 talsins, segir í tilkynningunni.
Auglýsing
Hópur íslenskra leikara var í forsvari fyrir Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka í ár en allir leikarar gáfu vinnu sína í þágu góðra málefna.