Svandís sér um kæru vegna knatthúsa FH í stað Sigurðar Inga

Fyrrverandi aðstoðarmaður Sigurðar Inga Jóhannssonar sveitarstjórnarráðherra situr í bæjarstjórn Hafnarfjarðar. Kæra vegna knatthúsa FH mun því verða afgreidd af Svandísi Svavarsdóttur.

FH knatthús stjórnsýsla
Auglýsing

Svan­dís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra mun fara með tvö kæru­mál er varða ákvarð­anir bæj­ar­stjórnar Hafn­ar­fjarðar um fram­kvæmdir og kaup á mann­virkjum í Kaplakrika í stað Sig­urðar Inga Jóhanns­sonar ráð­herra sveit­ar­stjórn­ar­mála. Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra lagði þetta til á fundi rík­is­stjórn­ar­innar í morg­un.

„Þar sem fyrr­ver­andi aðstoð­ar­maður Sig­urðar í emb­ætti sem ráð­herra, sem nýlega lét af störfum sem slík­ur, situr í bæj­ar­stjórn Hafn­ar­fjarð­ar, ákvað ráð­herra að víkja sæti. Ég ákvað að óska eftir því við heil­brigð­is­ráð­herra að hún tæki að sér að fara með mál­in. Málið fer bara yfir til þessa ráð­ehrra og hún skoðar það og úrskurð­ar. Þetta er nákvæm­lega eins og ég gerði um dag­inn þegar ég óskað eftir því að fjár­mála­ráð­herra yrði minn stað­geng­ill í stóra þjóð­söngs­mál­in­u,“ segir Katrín í sam­tali við Kjarn­ann.

Minni­hluti í bæj­ar­stjórn Hafn­ar­fjarðar kærði sam­þykktir meiri­hluta bæj­ar­stjórn­ar­innar til ráðu­neyt­is­ins, sem sner­ust um ramma­sam­komu­lag sem milli bæj­ar­ins og FH, sem mun byggja og eiga knatt­hús en Hafn­ar­fjarð­ar­bær í stað­inn kaupa eldra knatt­hús FH af félag­inu auk íþrótta­hús félags­ins í Kaplakrika.

Auglýsing

FH mun sem sagt byggja, eiga og reka knatt­húsið í stað þess að bær­inn geri það. Bær­inn kaupir þess í stað íþrótta­mann­virki í Kaplakrika og eign­ast þau að fullu, fyrir 790 millj­ónir króna. FH notar kaup­verðið til bygg­ingar á knatt­hús­inu og skuld­bindur sig til að klára fram­kvæmdir á eigin kostnað og ábyrgð fari kostn­aður fram yfir áætlun félags­ins. Bær­inn greiðir kaup­verðið svo í áföngum sam­kvæmt fjár­hags­á­ætlun bæj­ar­ins og eftir því hvernig fram­kvæmdum vindur fram.

Minni­hlut­inn er ósáttur við hvernig staðið var að afgreiðslu máls­ins sem var tekið fyrir í bæj­ar­ráði, en minni­hlut­inn telur að málið sé svo stórt og þess eðlis að leiða eigi það til lykta á vett­vangi bæj­ar­stjórnar þar sem allir bæj­ar­full­trúar hafi mögu­leika á að koma að afgreiðslu máls­ins.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent