Skúli segist sjálfsöruggur í tölvupósti til starfsmanna

Skúli Mogensen forstjóri WOW air sendi tölvupóst á alla starfsmenn fyrirtækisins eftir hádegi í dag þar sem hann segir að skuldabréfaútboði flugfélagsins miði vel áfram.

Skúli Mogensen
Auglýsing

Skúli Mog­en­sen for­stjóri WOW air sendi tölvu­póst á alla starfs­menn fyr­ir­tæk­is­ins eftir hádegi í dag þar sem hann segir að skulda­bréfa­út­boði flug­fé­lags­ins miði vel áfram. Vefur Við­skipta­blaðs­ins greindi fyrst frá.

Skúli segir í póst­inum að unnið sé dag og nótt við að ljúka ferl­inu og tryggja þannig lang­tíma fjár­mögnun WOW air. Enda­markið sé í aug­sýn og seg­ist Skúli öruggur að það tak­ist að ljúka útboð­inu.

Það sé hins vegar eðli­legt að það taki tíma að ganga frá smá­at­riðum og lausum endum áður en gengið verði end­an­lega frá fjár­mögn­un­inni. Skúli seg­ist einnig gera ráð fyrir því að fjöl­miðlar haldi áfram að fjalla um félagið og seg­ist skilja að starfs­menn séu undir þrýst­ingi frá vinum og vanda­mönnum sem vilji vita hvað gangi á hjá flug­fé­lag­inu. Starfs­fólki verði veittar frek­ari upp­lýs­ingar um leið og hægt er.

Auglýsing

Þangað til vill Skúli að allir haldi áfram að sinna því góða starfi sem unnið er hjá félag­inu á hverjum degi.

Skúli sagði útboðið á loka­metr­unum í síð­ustu viku og myndi ljúka öðru hvoru megin við liðna helgi. Upp­lýs­inga­full­trúi WOW air sagði hins vegar nú á þriðju­dag að von væri á nið­ur­stöðu í skulda­bréfa­út­boðið í kringum kom­andi helgi.

Greint var frá því í gær að Skúli reyndi nú, ásamt stjórn félags­­ins og ráð­­gjöf­um, að fá bankana, Arion banka, Íslands­­­banka og Lands­­bank­ann, til að koma að fjár­­­mögnun félags­­ins og tryggja þar með rekstur félags­­ins.

Á und­an­­förnum vikum hefur WOW Air reynt að tryggja fjár­­­mögnun upp á 50 til 100 millj­­ónir evra, eða sem nemur allt að ríf­­lega 13 millj­­örðum króna.

Norska verð­bréfa­­fyr­ir­tæk­ið Par­eto hefur yfir­­um­­sjón ­með ferl­inu, og hefur WOW Air kynnt áform og rekstur sinn fyrir erlendum fjár­­­fest­­um. Ferlið hófst í lok mán­að­­ar­ins, eins og fram hefur komið í fréttum og frétta­­skýr­ingum á vef Kjarn­ans. Grein­endur Par­eto spá því að tap WOW Air í ár verði 3,3 millj­­arðar króna, en rekstr­­ar­um­hverfi flug­­­fé­laga hefur versnað tölu­vert að und­an­­förnu, ekki síst vegna harðn­­andi sam­keppni og vax­andi olíu­­­kostn­að­­ar.

Tölvu­póstur Skúla Mog­en­sen til starfs­manna WOW air:

Dear Fri­ends,

As all of you know we have been work­ing day and night on clos­ing our bond offer­ing and sec­uring the long term fin­ancing of Wow air. We are mak­ing good progress and can see the fin­is­hing line and I am very con­fident that we will get this done. However, it is comp­let­ely normal that the final details will take some time to sort out before we can fina­lize everyt­hing.

I expect the media will cont­inue writ­ing about us and I fully und­er­stand that you are under pressure from fri­ends and family who are wond­er­ing what is going on.

We will give you more information as soon as possi­ble.

In the meanti­me, let‘s all cont­inue to do the great work we are doing every single day.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent