Vísinda- og tækniráð Íslands efnir til opins samráðs við almenning og hagsmunaaðila um skilgreiningu þeirra framtíðaráskorana sem vísindi og rannsóknir ættu markvisst að takast á við. Þetta kemur fram í frétt á vefsíðu Stjórnarráðsins í dag.
Samkvæmt henni er markmið þess að fá fram fjölbreytt sjónarmið og ábendingar sem geta eflt forgangsröðun fjárfestinga í rannsóknum og nýsköpun hér á landi. Á grundvelli gagna úr samráðinu verða skilgreind þrjú til fimm áherslusvið og þverfaglegt samstarf innan þeirra eflt með þátttöku háskóla, rannsóknarstofnana og fyrirtækja.
Í fréttinni segir að vísinda- og tækniráð móti opinbera stefnu í vísindum og tækni á Íslandi og hafi það hlutverk að efla vísindarannsóknir, vísindamenntun og tækniþróun í því skyni að treysta stoðir íslensks samfélags.
Í stefnu Vísinda- og tækniráðs fyrir 2017 til 2019 er kveðið á um að efna til víðtæks samráðs við skilgreiningu samfélagslegra áskorana sem Ísland stendur frammi fyrir á komandi árum og áratugum og sem vísindin ættu forgangsraða. Fyrri stefnumótanir hafa byggt á samráði við hagsmunaaðila á borð við vísinda- og nýsköpunarsamfélagið og atvinnulífið en í þetta sinn er samráðið mun víðtækara og er almenningur sérstaklega hvattur til að setja sig mark á stefnuna.
Hægt er að taka þátt með því að svara stuttri netkönnun á síðunni www.samfelagslegaraskoranir.is fyrir 7. október næstkomandi.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir Íslendinga standa frammi fyrir ýmsum hnattrænum áskorunum þegar kemur að umhverfis- og loftslagsmálum og heilsu-, orku- og öryggismálum svo dæmi séu tekin. „Sömuleiðis hlýt ég að nefna þá tæknibyltingu sem við stöndum frammi fyrir. Þátttaka alls almennings er lykilatriði til að samfélaginu farnist sem best í að mæta þessum áskorunum,“ segir hún.