N1 mun heita Festi

Hluthafafundur N1 hf. samþykkti í dag nýtt nafn á félagið og starfskjarastefnu sem gerir ráð fyrir lægri kaupaukagreiðslum en áður höfðu verið fyrirhugaðar hjá stjórn félagsins. Björgólfur Jóhannsson kemur nýr inn í stjórn.

bensin olia n1
Auglýsing

N1 hf. mun héðan í frá heita Festi hf. sam­kvæmt nýjum sam­þykktum hlut­hafa­fundar félags­ins í dag.

Þá var á sam­þykkt end­ur­skoðuð starfs­kjara­stefna fyrir félag­ið, en hún gerir ráð fyrir að hámarks kaup­auki for­stjóra geti orðið að hámarki 3 mán­uðir í stað 6 mán­aða áður, óheim­ilt sé að greiða umfram ráðn­ing­ar­samn­ing við upp­sögn for­stjóra. Vill stjórn félags­ins með þessu skapa for­dæmi í íslensku atvinnu­lífi með því að „sýna hóg­værð í breyti­legum launa­greiðslum til æðstu stjórn­enda.“

Ás­mundur Einar Daða­son ráð­herra vinnu­mála ræddi sér­stak­lega kaupauka­greiðslur N1 í ræðu sinni á Alþingi á dög­un­um, þar sem hann meðal ann­ars sagði „ég segi við líf­eyr­is­­sjóð­ina og aðra sem eiga í þessu fyr­ir­tæki að þess­­ari vit­­leysu verður að ljúka. Þessa til­­lögu verður að draga til bak­a.“

Auglýsing

Stjórn Líf­eyr­is­sjóðs verzl­un­ar­manna sem er stærsti hlut­hafi N1 fund­aði um þessi áform stjórnar N1 að taka að nýju upp kaupauka­kerfi og hið sama gerði stjórn Gildis líf­eyr­is­sjóðs.

Stjórn félags­ins ákvarð í kjöl­farið að leggja fram nýja til­lögu að starfs­kjara­stefnu fyrir hlut­hafa­fund­inn í dag, með breyttum og hóf­sam­ari til­lög­um, sem þó gera ráð fyrir mögu­leik­anum á kaupauk­um.

Björgólfur Jóhanns­son fyrr­ver­andi for­stjóri Icelandair kemur nýr inn í stjórn félags­ins en með honum í stjórn­inni verða eftir kosn­ingu nýrrar stjórnar í dag þau Guð­jón Karl Reyn­is­­son, Krist­ín Guð­munds­dótt­ir, Mar­grét Guð­munds­dótt­ir og Þórður Már Jó­hann­es­­son.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent