Velferðarráðuneytið: Bragi fór ekki út fyrir valdsvið sitt

Bragi Guðbrandsson hefur fengið bréf frá velferðarráðuneytinu þar sem það staðfestir að hann hafi ekki farið út fyrir verksvið sitt í barnaverndarmáli. Ráðuneytið hefur því fellt fyrri ákvörðun sína um slíkt úr gildi.

Bragi-Gubrandsson.jpg
Auglýsing

Vel­ferð­ar­ráðu­neytið hefur sent Braga Guð­brands­syni bréf þar sem það áréttar að ákvörðun þess um að hann hafi sem for­stjóri Barna­vernd­ar­stofu farið út fyrir verk­svið sitt í tengslum við barna­vernd­ar­mál í Hafn­ar­firði sé felld úr gildi. Bréf­ið, sem ráðu­neyt­is­stjóri og skrif­stofu­stjóri í ráðu­neyt­inu skrifa und­ir, var sent 21. sept­em­ber.

Í bréf­inu segir að „með vísan til þeirra gagna sem liggja fyrir í mál­inu er það nið­ur­staða ráðu­neyt­is­ins að mis­brestur hafi verið á máls­með­ferð ráðu­neyt­is­ins sem leiddi til nið­ur­stöðu þess 27. febr­úar 2018, einkum að ekki hafi verið farið að grund­vall­ar­reglum stjórn­sýslu­réttar um rann­sókn mála og and­mæla­rétt[...]Þá verður að mati ráðu­neyt­is­ins eftir athugun á gögnum máls­ins og eðlis þeirra leið­bein­inga sem þú sem for­stjóri Barna­vernd­ar­stofu veittir og voru til­efni til aðfinnslu ráðu­neyt­is­ins, ekki séð, að þú sem for­stjóri stofn­un­ar­innar hafi farið „út fyrir verk­svið [þ]itt“ eins og það er orðað í fram­an­greindu bréfi. Ekki verður heldur séð með vísan til gagna máls­ins, að upp­lýs­inga­gjöf þín sem for­stjóra stofn­un­ar­innar til föð­urafans í mál­inu, einkum í ljósi efnis umkvart­ana hans, hafi gefið ráðu­neyt­inu til­efni til athuga­semda.“

Ráðu­neytið áréttar því fyrri nið­ur­stöðu sína frá 29. júní 2018 um að ákvörð­unin sé felld úr gildi.

Auglýsing

Hægt er að lesa bréf ráðu­neyt­is­ins til Braga hér í heild sinni.

Óháð úttekt

Í umfjöllun Stund­ar­innar í apríl kom fram að ástæða þess að ráðu­neytið komst upp­runa­lega að þeirri nið­ur­stöðu að Bragi hefði farið út fyrir vald­svið sitt hefði verið sú að hann hefði beitt sér fyrir því að maður fengi að umgang­ast dætur sínar sem hann var ásak­aður um kyn­ferð­is­brot gagn­vart. Í kjöl­far þess frétta­flutn­ings fór Ásmundur Einar Daða­son, félags­mála­ráð­herra, fram á það við for­­sæt­is­ráð­herra að fram færi óháð úttekt á störfum Braga. 

Nið­­ur­­staða óháðrar úttektar á máls­­með­­­ferð og efn­is­­legri athugun vel­­ferð­­ar­ráðu­­neyt­is­ins í kjöl­far kvart­ana barna­vernd­­ar­­nefnda á höf­uð­­borg­­ar­­svæð­inu vegna Barna­vernd­­ar­­stofu og for­­stjóra hennar var birt í byrjun júní síð­ast­lið­inn.

Í nið­­ur­­stöðum úttekt­­ar­inn­ar voru gerðar athuga­­semdir við að vel­­ferð­­ar­ráðu­­neytið hafi full­yrt í bréfi sínu til Barna­vernd­­ar­­stofu og for­­stjóra hennar þann 27. febr­­úar síð­­ast­lið­inn að for­­stjór­inn hefði farið út fyrir verk­­svið sitt með því að beina mál­inu ekki til Emb­ætti sýslu­­manns á höf­uð­­borg­­ar­­svæð­inu.

Kjartan Bjarni Björg­vins­­­son hér­­­aðs­­­dóm­­­ari fram­­kvæmdi úttekt­ina með lið­sinni Krist­ínar Bene­dikts­dótt­­ur, dós­ent við laga­­­deild Háskóla Íslands. Í henni var farið yfir fyr­ir­liggj­andi gögn máls­ins og máls­­­með­­­­­ferð við­kom­andi stjórn­­­­­valda, það er þeirra barna­vernd­­­ar­­­nefnda sem tengj­­­ast við­kom­andi mál­um, Barna­vernd­­­ar­­­stofu og vel­­­ferð­­­ar­ráðu­­­neyt­­­is.

Þá voru einnig gerðar athuga­­semdir við það að í úttekt­inni hafi ráðu­­neytið kom­ist að nið­­ur­­stöðu í máli for­­stjór­ans án þess að vera gef­inn kostur á að kynna sér gögnin sem nið­­ur­­staðan var byggð á og veitt tæki­­færi til að tjá sig um þau.

Í úttekt­inni er jafn­­framt lýst efa­­semdum um að ráðu­­neytið hafi haft full­nægj­andi stoð um aðfinnslu um for­­stjóra Barna­vernd­­ar­­stofu.

Árétt­ing frá rit­stjóra Kjarn­ans:

Í leið­ara um mál­efni Braga Guð­brands­sonar sem birt­ist í Kjarn­anum 1. maí 2018 og skrif­aður var af und­ir­rit­uðum var gengið út frá því að þá fyr­ir­liggj­andi nið­ur­staða vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins um að Bragi hafi farið út fyrir starfs­svið sitt væri rétt. Auk þess í leið­ar­anum stuðst við frétta­flutn­ing Stund­ar­innar af umræddu máli, sem byggði á gögnum sem lágu til grund­vallar nið­ur­stöðu ráðu­neyt­is­ins. Nú liggur fyrir að ráðu­neytið hafi fellt þá ákvörðun úr gildi og því er sú full­yrð­ing sem sett var fram í leið­ar­anum að Bragi hafi farið út fyrir starfs­svið sitt dregin til baka.

- Þsj

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent