Ekki endilega sómi að því að afturkalla boðið til Piu

Steingrímur J. Sigfússon forseti Alþingis hefur svarað fyrirspurn um aðdraganda þess að Piu Kjærsgaard forseta danska þingsins var boðið á hátíðarfund Alþingis á Þingvöllum. Gefur í skyn að koma Piu hafi legið ljós fyrir löngu áður en fundurinn fór fram.

Steingrímur Jóhann Sigfússon Pia Kjærsgaard
Auglýsing

Stein­grímur J. Sig­fús­son for­seti Alþingis segir að óvíst væri að sómi hefði verið að því að aft­ur­kalla boð hans til Piu Kjærs­gaard, for­seta danska þings­ins á hátíð­ar­fund­inn á Þing­völl­um. Fyrir því væri engin „venja„ og ekk­ert dæmi finn­ist um að form­legt boð til erlends þing­for­seta eða sér­staks gests á vegum Alþingis hafi verið aft­ur­kall­að.

Þetta kemur fram í svari Stein­gríms við fyr­ir­spurn Jóns Þórs Ólafs­sonar þing­manns Pírata um aðdrag­and­ann að ávarpi Piu á hátíð­ar­fund­in­um.

Jón spurði meðal ann­ars hvenær Piu var form­lega boð­ið, hver tók þá ákvörðun og hvenær og hvernig ákvörð­un­ar­ferl­inu var hátt­að. Í svar­inu kemur fram að þegar hug­myndir um hátíð­ar­fund­inn hafi fyrst verið ræddar á sum­ar­fundi for­sætis­nefndar í ágúst árið 2017 hafi það verið kannað óform­lega hjá skrif­stofu danska þings­ins hvort lík­legt væri að for­seti danska þings­ins gæti þegið boð á hátíð­ar­fund Alþingis og flutt ávarp á Þing­völl­um. „Málið var til athug­unar um nokk­urt skeið og loks ákveðið að því yrði ráðið til lykta á fundi sem for­seti Alþingis átti með for­seta danska þings­ins 20. apríl 2018, en sá tví­hliða fundur var hald­inn í tengslum við ferð for­seta og for­sætis­nefndar á Jóns­há­tíð í Kaup­manna­höfn (sum­ar­dag­inn fyrsta). Boðs­bréf á hátíð­ar­fund Alþingis voru send 14. febr­úar 2018 til erlenda gesta en nán­ari dag­skrá ekki send að því sinni. Til­kynn­ingu um að danski þing­for­set­inn mundi flytja ávarp á Þing­völlum var birt á vef Alþingis 20. apríl 2018 og með henni fylgdi mynd af þing­for­set­unum með sér­stakan full­veld­is­fána á milli sín með íslenskri áletr­un.“

Auglýsing

Jón Þór spurði einnig hvenær og með hvaða hætti full­trúar í for­sætis­nefnd og for­menn þing­flokka hafi verið upp­lýstir um að fyr­ir­hugað væri að bjóða Piu á fund­inn í krafti emb­ættis henn­ar.

Stein­grímur leggur einnig áherslu á í svari sínu að þegar þing­for­setum erlendra ríkja er boðið í opin­bera heim­sókn, þeir sóttir heim eða önnur hefð­bundin sam­skipti átt við þá er ekki spurt um stjórn­mála­skoð­anir við­kom­andi ein­stak­lings enda er boðið til þess sem er æðsti full­trúi þjóð­þings­ins gangvart öðrum þing­um. Gildir slíkt jafnt um smá sem stór ríki.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent