365 miðlar selja allt hlutafé sitt í Sýn - Kaupa þrjú prósent í Högum

365 miðlar selja stóran hlut sinn í fjarskiptafyrirtæki og kaupa í Högum. Gamla Baugsfjölskyldan verður aftur á meðal stærstu eigenda Haga eftir viðskiptin. Þurfa ekki lengur að selja Fréttablaðið.

Bónus er stærsta dagvöruverslunarkeðja landsins.
Bónus er stærsta dagvöruverslunarkeðja landsins.
Auglýsing

365 miðlar hefur selt 10,92 pró­sent hlut sinn í Sýn sem félagið fékk þegar það seldi ljós­vaka- og fjar­skipta­starf­semi sína til Sýnar í lok síð­asta árs. Sölu­verðið er um tveir millj­arðar króna. Frá þessu er greint á vef Frétta­blaðs­ins en eig­endur þess mið­ils eru 365 miðl­ar. Eig­andi félags­ins er Ingi­björg Pálma­dóttir og félag­inu er einnig stýrt af eig­in­manni henn­ar, Jóni Ásgeiri Jóhann­essyni.

Í frétt Frétta­blaðs­ins segir að í 365 miðlar hafi í staðin keypt ríf­lega þriggja pró­senta hlut í Högum og greitt fyrir það tæp­lega 1,8 millj­arða króna. Félög Ingi­bjargar áttu fyrir meira en tveggja pró­senta hlut í Hög­um. Frétta­blaðið segir að þau kaup hafi verið fjár­mögnuð af Kviku banka.

Þurfa ekki að selja Frétta­blaðið lengur

Greint hefur verið frá því að und­an­förnu að Kvika banki sé að reyna að selja Frétta­blaðið fyrir hönd hjón­anna. Þetta er meðal ann­ars vegna skil­yrða sem Sam­keppn­is­eft­ir­litið setti þegar eig­end­­urnir seldu ofan­greindir eignir til Sýnar í fyrra. 

Auglýsing
Þá fékk eig­and­inn, 365 mið­l­­ar, 30 mán­uði, frá og með 8. októ­ber 2017, til að selja annað hvort Frétta­­blaðið eða hlut sem hann fékk afhentan í Sýn, fjar­­skipta- og fjöl­miðla­­fyr­ir­tækis sem skráð er á mark­að.

Nú er ljóst að 365 miðlar hefur selt hlut sinn í Sýn og getur þar með átt Frétta­blaðið og tengda miðla áfram.

Hagar áður í eigu Baugs­fjöl­skyld­unnar

Hagar er stærsta smá­sölu­fyr­ir­tæki á Íslandi. Krúnu­djásn félags­ins eru Bón­usversl­an­irn­ar, sem eru með stærstu mark­aðs­hlut­deild í dag­vöru á Íslandi. Jón Ásgeir og faðir hans Jóhannes Jóns­son stofn­uðu Bónus árið 1989 en misstu Haga úr höndum eftir hrunið og gjald­þrot Baugs Group, fjár­fest­inga­fé­lags fjöl­skyld­unn­ar.

Kjarn­inn fjall­aði ítar­lega um end­ur­komu hjón­anna inn í hlut­hafa­hóp Haga í frétta­skýr­ingu fyrir tæpum tveimur árum síð­an. Hana má lesa hér.  

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent