Sagði SS-sveit sérfræðinga að sunnan koma í veg fyrir framfarir á Vestfjörðum

Þingmaður Sjálfstæðisflokks sagði að SS-sveitir sérfræðinga að sunnan kæmu í veg fyrir að atvinnulíf, samgöngur og virkjanir fái að rísa á Vestfjörðum. Hann sagðist ekki hafa verið að notast við líkindi við sérsveit nasista.

Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokks.
Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokks.
Auglýsing

Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks, segir að SS-sveitir sér­fræð­inga að sunnan komi í veg fyrir að atvinnu­líf, sam­göngur og virkj­anir fái að rísa á Vest­fjörð­um.

Þetta sagði Ásmundur í umræðum um Fisk­eldi sem nú standa yfir á Alþingi. „Ég held að við þurfum að taka Vest­firð­inga og Vest­firði í faðm­inn og hjálpa þeim í gegnum þennan ólgu­sjó sem þeir eru í núna. Það er okkar hlut­verk. Ræðum það sem við þurfum að gera til að hjálpa þeim til. Veitum ráð­herr­anum þessa heim­ild, frestum þessum rétt­ar­á­hrif­um, gerum það sem fyrst, stöndum vel að því og síðan munum við’ örugg­lega hafa almennt um fisk­eld­i.“

SS-sveit­irnar voru örygg­is- og her­sveitir þýska Nas­ista­flokks­ins sem stofn­aðar voru á þriðja ára­tugnum og voru starf­ræktar fram til árs­ins 1945. Þær voru þekktar fyrir mikla grimmd í garð óbreyttra borg­ara og stríðs­fanga og báru ábyrgð á feiki­legu mann­falli á meðan að á seinni heims­styrj­öld­inni stóð.

Auglýsing

Smári McCart­hy, þing­maður Pírata gerði athuga­semd við orða­lag Ásmundar og að hann not­aði lík­indi við sér­sveitir nas­ista í máli sínu við umræður á Alþingi. Ásmundur sagði að hann hafi ekki ætlað að nota slík lík­indi, heldur hafi SS staðið fyrir sér­fræð­inga að sunn­an.

Verið að ræða bráða­birgða­heim­ild ráð­herra

Nú standa yfir umræður á Alþingi um nýtt frum­varp sjá­v­­­ar­út­­­vegs- og land­­bún­­að­­ar­ráð­herra en sam­­­kvæmt því mun verða mög­u­­­legt að veita rekstr­­­ar­­­leyfi til bráða­birgða fyrir fisk­eld­i, og féllu ummæli Ásmundar í þeim umræð­um.

Frum­varpið var kynnt á rík­­­is­­­stjórn­­­­­ar­fundi í gær en í til­­kynn­ingu frá ráðu­­neyt­inu segir að því sé ætlað að lag­­­færa ­með almennum hætti ann­­­marka á lögum um fisk­eldi til fram­­­tíð­­­ar. Sá ann­­­marki birt­ist í því að sam­­­kvæmt gild­andi lögum sé eina úrræði Mat­væla­­­stofn­un­­ar, í þeim til­­­vikum sem rekstr­­­ar­­­leyfi fisk­eld­is­­­stöðvar er fellt úr gildi, að stöðva starf­­­semi henn­­­ar.

Úrskurð­­­ar­­­nefnd umhverf­is- og auð­linda­­­mála felldi úr gildi rekstr­­­ar­­­leyfi og starfs­­­leyfi Fjarð­­­ar­­­lax og Arctic Sea til lax­eldis í sjó­kvíum í Pat­­­reks­­­firði og Tálkna­­­firði og vís­aði einnig frá beiðni fyr­ir­tækja um frestun rétt­­­ar­á­hrifa. Sam­tals voru leyfin upp á um 17.500 tonn en sveit­­­ar­­­fé­lögin á starfs­­­svæði fyr­ir­tækj­anna hafa mót­­­mælt stöð­unni sem komin er upp og kraf­ist aðgerða.

Drög að frum­varp­inu voru sem sagt sam­­­þykkt á auka­fundi rík­­­is­­­stjórn­­­­­ar­innar í hádeg­inu í gær og kynnt hinum stjórn­­­­­mála­­­flokk­unum síð­­­degis í gær. Fyr­ir­tækj­unum Arctic Fish og Fjarða­­­laxi er því gef­inn frestur til að fara yfir umhverf­is­­­mat fyr­ir­tækj­anna til að tryggja að umsókn þeirra um aukið lax­eldi á sunn­an­verðum Vest­­­fjörðum verði sam­­­kvæmt lögum og regl­­­um. Aðspurður segir Krist­ján Þór frum­varpið ekki fara á svig við úrskurð nefnd­­­ar­innar um að fella starfs­­­leyfi fisk­eld­is­­­fyr­ir­tækj­anna tveggja úr gildi. Hann segir þá ákvörðun vera sjálf­­­stæða og frum­varpið ekki snerta hennar úrskurð. Frum­varpið flýti ein­fald­­­lega fyrir ferli máls­ins en bið eftir úrskurði dóm­stóla væri bæði kostn­að­­­ar­­­söm og tíma­frek.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent