Ekki verður tekin ákvörðun um lögbann á vefsíðuna tekjur.is í dag. Samkvæmt upplýsingum frá Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu fær málið flýtimeðferð en þó er ekki hægt að segja nákvæmlega til um hvenær ákvörðunin um lögbannið verður tekin. Þetta kemur fram í frétt RÚV.
Ef sýslumaður metur að skilyrði fyrir lögbanni séu ekki fyrir hendi verður málið endursent. Ef skilyrði til lögbanns eru fyrir hendi tekur sýslumaður ákvörðun um málið en einnig er mögulegt að báðir aðilar verði boðaðir í fyrirtöku og ákvörðun tekin í framhaldi af því. Litið er á málið sem forgangsmál og fær það flýtimeðferð en þó er ekki ljóst hvenær ákvörðun verður tekin, segir í fréttinni.
Kjarninn fjallaði um málið í gær en Ingvar Smári Birgisson, formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna, gerði kröfu um að lögbann yrði sett á vefinn Tekjur.is. Auk þess hefur formleg kvörtun borist Persónuvernd frá almannatenglinum Björgvini Guðmundssyni vegna málsins.
Í yfirlýsingu frá Ingvari Smára segir: „Ég tel að birting fjárhagsupplýsinga allra skattgreiðenda á vefnum Tekjur.is feli í sér ómaklega aðför að stjórnarskrárvörðum rétti almennings til friðhelgis einkalífs. Með starfrækslu vefsins er að mínu mati farið út fyrir heimildir þeirra ákvæða sem hafa legið að baki opinberri umfjöllun um laun og skattgreiðslur Íslendinga í gegnum árin. Í ljósi þess tel ég rétt að sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu leggi lögbann við vinnslu Viskubrunns ehf. á fjárhagsupplýsingum Íslendinga og að félaginu verði gert að afmá upplýsingarnar af vefsíðu sinni, tekjur.is. Í kjölfarið sé svo hægt að takast á við um lögmæti lögbannsins fyrir dómstólum.“
Í tilkynningu frá Jóni R. Arnarsyni, stjórnarformanni Viskubrunns ehf. sem setti upp og rekur vefinn, sem send var út á föstudag sagði að fyrirtækið hafi verið stofnað til að „stuðla að gagnsæi og samræmi í umfjöllun um skattamál. Þannig eru ekki birtar upplýsingar um þröngan hóp valinna einstaklinga, heldur er notendum síðunnar í sjálfsvald sett hvaða upplýsingar þeir kynna sér. Upplýsingarnar á Tekjur.is eru endanlegar upplýsingar um framtaldar tekjur. Þar eru ekki birtar bráðabirgðaupplýsingar eða áætlanir eins og hingað til hefur tíðkast í tekjublöðum.“
Byggja á lögum frá 1984
Upplýsingar um það hvernig tekjur fólks skiptast, og tæmandi upplýsingar um hverjir borga hvað í skatta, er hægt að finna í svokallaðri skattskrá. Í vor var skattskráin fyrir árið 2017 gerð opinber. Í henni er að finna niðurbrot á öllum skattgreiðslum einstaklinga – tekjuskatt, útsvar og fjármagnstekjuskatt – vegna ársins 2016. Þessar upplýsingar, sem eru gerðar aðgengilegar af ríkisskattstjóra, er heimilt að birta opinberlega samkvæmt annarri málsgrein 98. greinar laga um tekjuskatt sem sett voru 1984. Þar segir: „Heimil er opinber birting á þeim upplýsingum um álagða skatta, sem fram koma í skattskrá, svo og útgáfa þeirra upplýsinga í heild eða að hluta.“
Ingvar Smári er þessu ósammála og segir í yfirlýsingu sinni að sterk rök megi „færa fyrir því að sala á aðgangi að gagnagrunni sem inniheldur upplýsingar um skattgreiðslur allra landsmanna sé lögbrot. Persónuvernd hefur áður fallist á að birting upplýsinga úr skattskrá Ríkisskattstjóra, mjög svipuð þeirri sem á sér stað á tekjur.is, sé ólögmæt. Þá verður að hafa í huga að ákvæði það sem Viskubrunnur ehf. ber fyrir sig, 2. mgr. 98. gr. tekjuskattslaga, var lögfest fyrir tíma internetsins. Um er að ræða ákvæði sem felur í sér takmörkun á borgaralegum réttindum og því sé rétt að skýra það þröngt, þannig að gildissvið ákvæðisins sé takmarkað sem mest. Enn fremur hefur réttarvernd almennings gagnvart notkun á persónuupplýsingum þeirra verið styrkt til muna með tilkomu nýrra laga um Persónuvernd.
Verði ekki fallist á lögbann verður tekið til skoðunar að leita álits dómstóla á því hvort vegi hærra, réttur almennings til friðhelgis einkalífs eða réttur almennings til þess að starfrækja gagnagrunn á internetinu sem inniheldur upplýsingar um laun og skattgreiðslur skattgreiðenda.“