Það að kalla blaðamann „óvin vinnandi stétta“, að segja að honum hafi verið „sigað á [okkur] af húsbónda sínum“ og lýsa honum sem „holum manni“, vegna harðra skoðanaskrifa hans um samningskröfur stéttarfélaga, er tilraun til að vega að mennsku hans og trúverðugleika. Þetta segir Jón Trausti Reynisson ritstjóri Stundarinnar í stöðuuppfærslu á facebook-síðu sinni í dag.
Tilefni skrifa Jóns Trausta er pistill Sólveigar Önnu Jónsdóttur formanns Eflingar sem hún birti á facebook-síðu sinni í gærkvöldi. Þar sagðist hún finna sig knúna til að bregðast við leiðara Fréttablaðsins, „Stærsta ógnin“, sem birtist á föstudaginn var. Hörður Ægisson, ritstjóri Markaðarins viðskiptablaðs Fréttablaðsins, gagnrýnir í leiðaranum kröfur Starfsgreinasambands Ísland og VR í komandi kjaraviðræðum.
Jón Trausti segir stéttarfélögin hafa góðan málstað eftir stórtækar launahækkanir ráðamanna og forstjóra, stöðugar húsnæðisverðhækkanir, minnkandi bótagreiðslur og vegna ömurlegrar stöðu lágtekjufólks og þeirrar staðreyndar að Íslendingar vinna að meðaltali mun meira en helstu samanburðarþjóðir.
„Hvað sem fólki finnst um skrif Harðar Ægissonar, ritstjóra Markaðarins, er ekkert sem staðfestir að hann sé „handbendi“ eða stýrist beint af einhverjum „húsbónda“. Hann kann að hafa sínar skoðanir og hans skoðunum getum við verið ósammála. Það er munur á því að hafa skoðun eða vera beinlínis í duldum hagsmunaárekstri. Þess fyrir utan hefur Hörður augljóslega gert margt gott og mikilvægt í blaðamennsku, til dæmis afhjúpað svívirðilegar bónusgreiðslur,“ segir hann.
Jón Trausti bendir á að í síðasta góðæri hafi Íslendingar verið með ritstjóra Markaðarins sem hafði þegið hundruð milljóna króna í kúlulánum til að kaupa í Kaupþingi og Exista, með veði í bréfunum, og skrifað svo viðtal við bankastjórann um ósanngjarnar árásir á bankann.
Tilvalið að svara efnislega, ráðast á rökin og sannreyna fullyrðingar
„Ég veit ekki til þess að neinn hafi sýnt fram á að Hörður sé í hagsmunaárekstri. Við þurfum að gera greinarmun á því að fólk sé í hagsmunaárekstri og því að það hafi skoðanir sem stangast á við okkar, eða okkur þyki það vega ómaklega að okkur. Og í því tilfelli er tilvalið að svara viðkomandi efnislega, ráðast á rökin og sannreyna fullyrðingar, frekar en að reyna að koma á stigmagnandi og pólaríserandi umræðutaktík skotgrafanna, þar sem aðrir eru einfaldlega „óvinir“ eða „handbendi“.
Ef við innleiðum almennt orðræðutaktík með „ad hominem“ árásir á meinta andstæðinga - fólk af annarri skoðun - sem er nánast afmennskað, „holir menn“ - getur samfélagslegi skaðinn orðið á dýpri skala en efnahagslegt verðbólguskot,“ segir Jón Trausti.
Stéttarfélögin hafa góðan málstað eftir stórtækar launahækkanir ráðamanna og forstjóra, stöðugar húsnæðisverðhækkanir,...
Posted by Jón Trausti Reynisson on Monday, October 22, 2018