Jón Trausti: Tilraun til að vega að mennsku blaðamanns og trúverðugleika

Ritstjóri Stundarinnar segir að það sé munur á því að hafa skoðun eða vera beinlínis í duldum hagsmunaárekstri.

Jón Trausti Reynisson, ritstjóri Stundarinnar.
Jón Trausti Reynisson, ritstjóri Stundarinnar.
Auglýsing

Það að kalla blaða­mann „óvin vinn­andi stétta“, að segja að honum hafi verið „sigað á [okk­ur] af hús­bónda sín­um“ og lýsa honum sem „holum mann­i“, vegna harðra skoð­ana­skrifa hans um samn­ings­kröfur stétt­ar­fé­laga, er til­raun til að vega að mennsku hans og trú­verð­ug­leika. Þetta segir Jón Trausti Reyn­is­son rit­stjóri Stund­ar­innar í stöðu­upp­færslu á face­book-­síðu sinni í dag. 

­Til­efni skrifa Jóns Trausta er pist­ill Sól­veigar Önnu Jóns­dóttur for­manns Efl­ingar sem hún birti á face­book-­síðu sinni í gær­kvöldi. Þar sagð­ist hún finna sig knúna til að bregð­ast við leið­ara Frétta­blaðs­ins, „Stærsta ógn­in“, sem birt­ist á föstu­dag­inn var. Hörður Ægis­son, rit­stjóri Mark­að­ar­ins við­skipta­blaðs Frétta­blaðs­ins, gagn­rýnir í leið­ar­anum kröfur Starfs­greina­sam­bands Ísland og VR í kom­andi kjara­við­ræð­u­m. 

Auglýsing

Jón Trausti segir stétt­ar­fé­lögin hafa góðan mál­stað eftir stór­tækar launa­hækk­anir ráða­manna og for­stjóra, stöðugar hús­næð­is­verð­hækk­an­ir, minnk­andi bóta­greiðslur og vegna ömur­legrar stöðu lág­tekju­fólks og þeirrar stað­reyndar að Íslend­ingar vinna að með­al­tali mun meira en helstu sam­an­burð­ar­þjóð­ir.

„Hvað sem fólki finnst um skrif Harðar Ægis­son­ar, rit­stjóra Mark­að­ar­ins, er ekk­ert sem stað­festir að hann sé „hand­bendi“ eða stýr­ist beint af ein­hverjum „hús­bónda“. Hann kann að hafa sínar skoð­anir og hans skoð­unum getum við verið ósam­mála. Það er munur á því að hafa skoðun eða vera bein­línis í duldum hags­muna­á­rekstri. Þess fyrir utan hefur Hörður aug­ljós­lega gert margt gott og mik­il­vægt í blaða­mennsku, til dæmis afhjúpað sví­virði­legar bón­us­greiðsl­ur,“ segir hann. 

Jón Trausti bendir á að í síð­asta góð­æri hafi Íslend­ingar verið með rit­stjóra Mark­að­ar­ins sem hafði þegið hund­ruð millj­óna króna í kúlu­lánum til að kaupa í Kaup­þingi og Exista, með veði í bréf­un­um, og skrifað svo við­tal við banka­stjór­ann um ósann­gjarnar árásir á bank­ann.

Til­valið að svara efn­is­lega, ráð­ast á rökin og sann­reyna full­yrð­ingar

„Ég veit ekki til þess að neinn hafi sýnt fram á að Hörður sé í hags­muna­á­rekstri. Við þurfum að gera grein­ar­mun á því að fólk sé í hags­muna­á­rekstri og því að það hafi skoð­anir sem stang­ast á við okk­ar, eða okkur þyki það vega ómak­lega að okk­ur. Og í því til­felli er til­valið að svara við­kom­andi efn­is­lega, ráð­ast á rökin og sann­reyna full­yrð­ing­ar, frekar en að reyna að koma á stig­magn­andi og pólaríser­andi umræðu­taktík skot­grafanna, þar sem aðrir eru ein­fald­lega „óvin­ir“ eða „hand­bend­i“.

Ef við inn­leiðum almennt orð­ræðu­taktík með „ad hominem“ árásir á meinta and­stæð­inga - fólk af annarri skoðun - sem er nán­ast afmennskað, „holir menn“ - getur sam­fé­lags­legi skað­inn orðið á dýpri skala en efna­hags­legt verð­bólgu­skot,“ segir Jón Traust­i. 



Stétt­ar­fé­lögin hafa góðan mál­stað eftir stór­tækar launa­hækk­anir ráða­manna og for­stjóra, stöðugar hús­næð­is­verð­hækk­an­ir,...

Posted by Jón Trausti Reyn­is­son on Monday, Oct­o­ber 22, 2018


Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent