Breki Karlsson er nýr formaður Neytendasamtakanna en niðurstöður kosninga til formanns voru kynntar klukkan 13 í höfuðstöðvum samtakanna á Hverfisgötu. Breki Karlsson hefur undanfarinn áratug unnið að neytendamálum sem forstöðumaður Stofnunar um fjármálalæsi. Ásamt Breka voru Ásthildur Lóa Þórsdóttir, Guðjón Sigurbjartsson og Unnur Rán Reynisdóttir í framboði til formanns.
Alls tóku 429 manns þátt í kosningum til formanns en alls voru 539 sem á kjörskrá. Breki hlaut 228 atkvæði eða 53 prósent atkvæða, Unnur Rán hlaut 88 atkvæði, 21 prósent, Ásthildur Lóa 80 atkvæði, 19 prósent og Guðjón 29 atkvæði eða 7 prósent atkvæða.
Þing Neytendasamtakanna fór fram í gær og lauk með kosningu til formanns og stjórnar en kosningin fór fram með rafrænum hætti. Stjórn Neytendasamtakanna auglýsti eftir framboðum til formanns og stjórnar um miðjan júní síðastliðinn. Neytendasamtökin höfðu verið án formanns frá því Ólafur Arnarson sagði af sér formennsku 10. júlí í fyrra eftir stutta og stormasama formannstíð.