Búið að blessa sölu á Bónusbúðum til Sigurðar Pálma

Hagar munu kaupa Olís á 10,7 milljarða króna á næstu vikum. Vonir standa til um að hægt verði að ganga frá kaupunum um miðjan nóvember. Óháður kunnáttumaður mat kaupendur á verslunum hæfa.

Bónus
Auglýsing

Hagar hafa und­ir­ritað kaup­samn­inga um allar eignir sem félagið þarf að selja til að upp­fylla sátt við Sam­keppn­is­eft­ir­litið vegna kaupa þess á Olís. Óháður kunn­áttu­maður hefur skilað áliti og metið kaup­endur eign­anna hæf­a. 

Um er að ræða þrjár Bón­usversl­anir á höf­uð­borg­ar­svæð­inu en Sig­urður Pálmi Sig­ur­björns­son, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Sports Direct á Íslandi og annar eig­andi vef­versl­un­ar­innar Box­ins, er sá sem mun kaupa. Um er að ræða Bón­usversl­an­irnar á Hall­veig­ar­stíg, Smiðju­vegi og í Faxa­feni. Sig­urður Pálmi er sonur Ingi­bjargar Pálma­dótt­ur, en faðir hennar stofn­aði og rak Hag­kaups­veldið um ára­bil. Eig­in­maður Ingi­bjargar er Jón Ásgeir Jóhann­es­son, stofn­andi Bón­us. Félög tengd þeim hjónum eiga um fimm pró­senta hlut í Hög­um.

Auglýsing
Í kynn­ingu á hálfs­árs­upp­gjöri Haga segir að nú sé ljóst að kaup­verðið á Olís og tengdu fast­eigna­fé­lagi verði 10,7 millj­arðar króna. Um 5,4 millj­arðar verða greiddir í reiðufé en um 5,3 millj­arðar króna´i formi hluta­fjár. Olís mun einnig þurfa að selja fimm elds­neyt­is­stöðv­ar. Von er á end­an­legri nið­ur­stöðu Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins um sam­runa félag­anna tveggja um miðjan nóv­em­ber.

Vöru­sala jókst lít­il­lega

Hagn­aður Haga á fyrstu sex mán­uðum árs­ins var 1.436 millj­ónir króna og vöru­sala félags­ins nam 37,7 millj­örðum króna. Það er um 500 millj­ónum meiri sala en var hjá félag­inu á sama tíma­bili á síð­asta rekstr­ar­ári. Fram­legð félags­ins var 9.155 millj­ónir króna, sam­an­borið við 9.197 millj­ónir króna árið áður eða 24,3 pró­sent fram­legð sam­an­borið við 24,7 pró­sent á fyrra ári.

EBIT­DA-hagn­aður var tæp­lega 2,4 millj­arðar króna og eigið fé félags­ins í lok tíma­bils­ins var 18,3 millj­arðar króna. Það þýðir að eig­in­fjár­hlut­fallið var 60 pró­sent.

Hluta­bréf í Högum hafa lækkað um 4,55 pró­sent í 290 milljón króna við­skiptum það sem af er degi. Ekk­ert félag í Kaup­höll Íslands hefur lækkað jafn mikið í dag.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent