Ásmundur Einar: Launahækkanir í efstu lögunum eru úr öllum takti

Ásmundur Einar Daðason ræddi um hátekjuskatt, endurreisn bótakerfis og allt of miklar launahækkanir í efstu lögunum í viðtali í sjónvarpsþættinum 21 á Hringbraut.

Ásmundur Einar Daðason
Auglýsing

„Stað­reyndin er sú að þær launa­hækk­anir sem við höfum verið að sjá í efstu lög­un­um, og kannski mest á almenna mark­aðnum sem er í meiri­hluta­eigu líf­eyr­is­sjóða[...]að launa­hækk­anir þar eru úr öllum takti. Ef við sjáum ekki að menn geti setið á sér þar á næstu árum þá er rosa­lega erfitt að rétt­læta það niður allan stig­ann að þetta sé ekki með þessum hætt­i.“

Þetta er meðal þess sem Ásmundur Einar Daða­son, félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra, sagði

Í við­tali Þórðar Snæs Júl­í­us­­son­­ar, rit­­stjóra Kjarn­ans, við hann í sjón­­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut sem frum­­sýndur var á mið­viku­dags­kvöld. Hægt er að sjá stiklu úr þætt­inum hér að neð­an.

Ásmundur Einar vakti nýverið athygli fyrir að segja að hann hefði það á til­finn­ing­unni að hér byggju tvær þjóðir en ekki ein þegar hann skoð­aði launa­upp­bygg­ingu þjóð­ar­inn­ar. Þörf væri á því að breyta skatt­kerf­inu, meðal ann­ars með hátekju­skött­um. Þegar Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra var spurð út í áform um álagn­ingu hátekju­skatt sagði hún að umræður um slíkan væru ekki hafnar og Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, sagði slíkar til­lögur ekki vera á borð­inu.

Auglýsing
Aðspurður um þessi atriði, og þessar mis­mun­andi fram­setn­ingar ráða­manna, sagði Ásmundur Einar að það hafi verið vinna í gangi um hvernig skatta- og bóta­kerf­inu verði breytt. „„Ég bind bara vonir við það að menn geti í sam­ein­ingu tekið á þess­ari þróun sem verið hefur verið hér í sam­fé­lag­in­u.“

Ásmundur Einar segir einnig að það sé vilji til að end­ur­reisa bóta­kerfin hér­lendis og þar með auka tekju­jöfn­un­ar­hlut­verk rík­is­sjóðs. „

„Það er vilji til þess og ég held að það hafi komið skýrt fram í þeim skrefum – þó mönnum þyki þau ekki stór – sem stigin verða við gerð fjár­laga­frum­varps næsta árs þar sem verið er bæði að gera breyt­inga á skatt­þrep­unum og að hækka barna­bæt­urn­ar.

Það er í gangi vinna við end­ur­skoðun á skatta- og bóta­kerf­inu á milli allra hlut­að­eig­andi ráðu­neyta. Sá hópur hefur meðal ann­ars átt fundi með aðilum vinnu­mark­aðar til þess að átta sig á því hvernig umræður munu þró­ast þar. Ég held að það sé gríð­ar­lega mik­il­vægt að nið­ur­staðan úr þessu rími við þá nið­ur­staða sem hugs­an­lega geti orðið á milli aðila innan vinnu­mark­að­ar­ins.“

Hægt er að horfa á við­talið við Ásmund Einar í heild sinni hér að neð­an.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent