Ásmundur Einar Daðason félags- og jafnréttismálaráðherra hefur ákveðið að framlengja um 12 mánuði frest fyrirtækja og stofnana til að öðlast jafnlaunavottun samkvæmt ákvæðum laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla. Þetta kemur fram í frétt ráðuneytisins.
Framlengingin tekur til fyrirtækja og stofnana, óháð stærð þeirra. Reglugerð ráðherra þessa efnis tók gildi í dag.
Reglugerðin felur í sér viðbótarákvæði við reglugerð um vottun á jafnlaunakerfum fyrirtækja og stofnana á grundvelli staðalsins ÍST 85. Með ákvörðun sinni nýtir ráðherra heimild sína til frestunar sem kveðið er á um í bráðabirgðaákvæði VI samkvæmt breytingu á fyrrnefndum lögum sem samþykkt var á Alþingi 1. júní árið 2017.
Framlengdur frestur nær ekki til allra
Aukinn frestur samkvæmt ákvörðun ráðherra nær ekki til opinberra stofnana, sjóða og fyrirtækja sem eru að hálfu eða að meiri hluta í eigu ríkisins með 25 starfsmenn eða fleiri að jafnaði á ársgrundvelli, segir í fréttinni. Framantaldir aðilar skulu hafa öðlast vottun á jafnlaunakerfi og framkvæmd eigi síðar en 31. desember á næsta ári.
Aukinn frestur nær heldur ekki til Stjórnarráðs Íslands sem skal hafa öðlast vottun eða staðfestingu á jafnlaunakerfi og framkvæmd þess samkvæmt lögum, eigi síðar en 31. desember næstkomandi.
Ákvörðun ráðherra um aukinn frest, líkt og kveðið er á um í reglugerðinni sem tók gildi í dag var unnið í samráði við helstu hagsmunaaðila, segir í frétt ráðuneytisins.