Frestur til að öðlast jafnlaunavottun framlengdur um 12 mánuði

Félags- og jafnréttismálaráðherra hefur ákveðið að framlengja frest fyrirtækja og stofnana til að öðlast jafnlaunavottun samkvæmt ákvæðum laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla.

Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafnréttismálaráðherra.
Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafnréttismálaráðherra.
Auglýsing

Ásmundur Einar Daða­son félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra hefur ákveðið að fram­lengja um 12 mán­uði frest fyr­ir­tækja og stofn­ana til að öðl­ast jafn­launa­vottun sam­kvæmt ákvæðum laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla. Þetta kemur fram í frétt ráðu­neyt­is­ins. 

Fram­leng­ingin tekur til fyr­ir­tækja og stofn­ana, óháð stærð þeirra. Reglu­gerð ráð­herra þessa efnis tók gildi í dag.

Reglu­gerðin felur í sér við­bót­ar­á­kvæði við reglu­gerð um vottun á jafn­launa­kerfum fyr­ir­tækja og stofn­ana á grund­velli stað­als­ins ÍST 85. Með ákvörðun sinni nýtir ráð­herra heim­ild sína til frest­unar sem kveðið er á um í bráða­birgða­á­kvæði VI sam­kvæmt breyt­ingu á fyrr­nefndum lögum sem sam­þykkt var á Alþingi 1. júní árið 2017.

Auglýsing

Fram­lengdur frestur nær ekki til allra

Auk­inn frestur sam­kvæmt ákvörðun ráð­herra nær ekki til opin­berra stofn­ana, sjóða og fyr­ir­tækja sem eru að hálfu eða að meiri hluta í eigu rík­is­ins með 25 starfs­menn eða fleiri að jafn­aði á árs­grund­velli, segir í frétt­inni. Fram­antaldir aðilar skulu hafa öðl­ast vottun á jafn­launa­kerfi og fram­kvæmd eigi síðar en 31. des­em­ber á næsta ári. 

Auk­inn frestur nær heldur ekki til Stjórn­ar­ráðs Íslands sem skal hafa öðl­ast vottun eða stað­fest­ingu á jafn­launa­kerfi og fram­kvæmd þess sam­kvæmt lög­um, eigi síðar en 31. des­em­ber næst­kom­and­i. 

Ákvörðun ráð­herra um auk­inn frest, líkt og kveðið er á um í reglu­gerð­inni sem tók gildi í dag var unnið í sam­ráði við helstu hags­muna­að­ila, segir í frétt ráðu­neyt­is­ins. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent