Öll 12 mánaða gömul börn eiga að fá tryggt leikskólapláss fyrir lok 2023

Reykjavíkurborg ætlar að ráðast í 5,2 milljarða króna fjárfestingu á næstu fimm árum til að fjölga leikskólaplássum um 700-750. Nýir leikskólar verða meðal annars byggðir. Framkvæmdirnar eiga að brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskólavistar.

23-april-2014_13980541461_o.jpg
Auglýsing

Reykja­vík­ur­borg ætlar að fjölga á leik­skóla­rýmum um 700-750 á næstu fjórum til fimm árum. Þetta verður gert með því að inn­leiða alls sjö til­lögur á tíma­bil­inu. Kostn­að­ar­mat stýri­hóps sem vann til­lög­urnar gerir ráð fyrir að inn­leið­ing þeirra kalli á 5,2 millj­arða króna fjár­fest­ingu á næstu fimm árum auk þess sem árlegur við­bótar rekstr­ar­kostn­aður vegna fjölg­unar leik­skóla­rýma verði allt að 1,4 millj­arðar króna á ári.

Auglýsing
Tillögurnar voru sam­þykktar á fundi borg­ar­ráðs í síð­ustu viku og verða form­lega kynntar á blaða­manna­fundi í Ráð­húsi Reykja­víkur klukkan 15 í dag. Yfir­skrift þess fundar er að til­lög­urnar eigi að brúa bilið milli fæð­ing­ar­or­lofs og leik­skóla svo bjóða megi öllum börnum 12 mán­aða og eldri leik­skóla­vist í Reykja­vík fyrir lok árs 2023.

Borg­ar­ráð sam­þykkti sömu­leiðis að til­lögu um stofnun stýri­hóps sem hafi eft­ir­lit með inn­leið­ingu til­lagn­anna og þeim fram­kvæmdum sem þær kveða á um.

Tekið inn tvisvar á ári

Í til­lög­unum felst meðal ann­ars að byggja fimm nýja leik­skóla, reisa við­bygg­ingar við að minnsta kosti fimm leik­skóla borg­ar­innar og ljúka við að setja á fót sér­út­búnar ung­barna­deildir við alla borg­ar­rekna leik­skóla sem hafa fjórar deildir eða fleiri á næstu fimm árum.

Auglýsing
Þá verða einnig nýjar leik­skóla­deildir opn­aðar í fær­an­legu hús­næði við fjóra leik­skóla strax á næsta ári. Form­leg inn­taka í leik­skóla verður tvisvar á ári, ann­ars vegar í ágúst/sept­em­ber eins og verið hefur en líka í jan­ú­ar/­febr­úar á hverju ári. Eftir sem áður verði heim­ilt að taka inn börn á öðrum tímum ef leik­skóla­rými losn­ar. 

Að end­ingu verður stefnt að því að fjölga börnum hjá sjálf­stætt reknum leik­skólum og dag­for­eldrum í sam­starfi við við­kom­andi rekstr­ar­að­ila.

Nýir leik­skólar byggðir

Nýju leik­skól­arnir sem eiga að rísa verða stað­settir í Úlf­arsár­dal, við Kirkju­sand, Njáls­götu, Voga­byggð og Skerja­fjörð. Við­bygg­ing­arnar sem byggja á verða við leik­skól­ana Selja­kot, Kvista­borg, Reyn­is­holt og Hof auk leik­skóla í Graf­ar­vogi.

Þá kemur fram í til­lögum stýri­hóps­ins að á árunum 2018-2023 sé stefnt að því að börnum í sjálf­stætt reknum leik­skólum fjölgi um allt að 166 til við­bótar þeirri fjölgun sem þegar er orðin á haust­mán­uðum 2018.

Stýri­hóp­inn skip­uðu: Skúli Helga­son for­mað­ur, Ilmur Krist­jáns­dóttir og svo í hennar stað Guð­rún Alda Harð­ar­dóttir frá 24. nóv­em­ber 2016, Líf Magneu­dótt­ir, Jóna Björg Sætran, James Madd­i­son, og Kjartan Magn­ús­son en Örn Þórð­ar­son tók sæti þess síð­ast­nefnda í hópnum í sept­em­ber 2016. Starfs­maður hóps­ins var í byrjun Hildur Skarp­héð­ins­dóttir en Ingi­björg M. Gunn­laugs­dóttir tók við af henni í sept­em­ber 2016.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent