Blýanturinn á útleið í prófum – Tölvur taka við

Innan nokkurra ára munu blýanturinn og penninn heyra sögunni til innan Háskóla Íslands með tilkomu rafræns prófakerfis.

Blýantur
Auglýsing

Stefnt er að því að allt próf­hald við Háskóla Íslands verði raf­rænt innan nokk­urra ára með til­komu nýs prófa­kerfis sem skól­inn er nú að inn­leiða og hefur reynst afar vel víða á Norð­ur­lönd­um. Þetta kemur fram í frétt Háskóla Íslands.

Hreinn Páls­son próf­stjóri skól­ans segir að Háskóli Íslands sé meðal frum­kvöðla í raf­rænu prófa­haldi hér á landi og hafi boðið upp á raf­ræn próf í ein­hverri mynd í um tutt­ugu ár. Það hafi hins vegar orðið geysi­leg fram­þróun í hönnun raf­rænna prófa­kerfa und­an­farin þrjú til fjögur ár sem gerir þeim kleift að inn­leiða raf­rænt prófa­hald fyrir allan skól­ann.

Hann segir að í leit sinni að hent­ugu prófa­kerfi fyrir Háskóla Íslands hafi starfs­hópur innan skól­ans fljót­lega beint sjónum sínum að hinum nor­rænu ríkj­unum en þau virð­ist standa einna fremst í raf­rænu próf­haldi.

Auglýsing

Insper­a-­prófa­kerfið notað í háskólum á Norð­ur­lönd­unum

„Nið­ur­staða hóps­ins var að Insper­a-­prófa­kerfið væri okkar væn­leg­asti kost­ur. Það getur þjónað ólíkum þörfum mis­mun­andi deilda skól­ans, það býður á 20 mis­mun­andi teg­undir spurn­inga og getur haldið utan um verk­efna­skil og próf af fjöl­breyttu tagi. Þá nýt­ist kerfið vel fyrir fjar­próf og allar úrlausnir skila sér inn strax til yfir­ferðar hjá kenn­ara óháð því hvar próf er tek­ið. Þá hefur kerfið verið tekið upp í fjöl­mörgum háskólum á Norð­ur­löndum og gef­ist þar vel,“ segir Hreinn. Hann bætir því við að unnið sé að því að tengja Inspera og Uglu, innri vef skól­ans, þannig að heiti nám­skeiða, nem­enda og ein­kunnir flæði á milli kerf­anna.

Háskóli Íslands Mynd: Birgir Þór

Í umfjöllun HÍ segir að nem­endur geti tekið próf í Inspera í tölvu­verum HÍ eða á eigin tölvu, hvort sem er heima eða á próf­stað. „Nem­endur skrá sig inn á til­tekna slóð og taka próf í aðgengi­legu og ein­földu við­móti. Umhverfi Inspera er læst sem þýðir að að ekki er hægt að vafra um netið en þó getur kenn­ari skil­greint hvaða for­rit eða vef­síður nem­endur mega nálg­ast í próf­in­u,“ segir Hreinn.

Felur í sér fjár­hags­legan og umhverf­is­legan ávinn­ing

Inn­leið­ing kerf­is­ins felur líka í sér fjár­hags­legan og umhverf­is­legan ávinn­ing fyrir skól­ann því hætt verður að ljós­rita próf­verk­efni og prenta þar til gerðar próf­bæk­ur, sem nem­endur hafa skrifað svör sín í hingað til, verða óþarfar, sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá HÍ.

Í frétt­inni segir enn fremur að nú þegar hafi nokkur próf farið fram í Inspera innan skól­ans og hafi fram­kvæmdin gengið vel. Hreinn segir inn­leið­ing­una þó taka nokkur miss­eri. „Há­skól­inn í Bergen, sem er svip­aður af stærð og Háskóli Íslands, hóf sína inn­leið­ingu vorið 2015 með 5 pró­sent notk­un. Á haust­miss­eri sama árs stökk notkun upp í 48 pró­sent og á vormiss­eri 2017 var hún komin upp í 67 pró­sent,“ segir hann og bætir því við að innan fárra ára verði það að þreyta skrif­legt próf með hand­skrifæri að vopni von­andi hluti af þeim úrræðum sem bjóð­ast þeim nem­endum sem glíma við tölvu­höml­un.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent