Talið að vél­um WOW air muni fækka

Ekki er ljóst hvort fækkað verði í flug­flota WOW air ef kaup Icelanda­ir á flugfélaginu ganga eft­ir.

A320neo_WowAir_CFM_01.jpg
Auglýsing

Veru­lega verður fækkað í flug­flota WOW air, sam­kvæmt heim­ildum Vík­ur­frétta, en í umfjöllun mið­ils­ins kemur fram að félagið muni þurfa að leggja átta af tutt­ugu þotum sín­um. Þetta muni vera hluti af breyt­ingum sem þurfi að gera vegna kaupa Icelandair Group á öllu hlutafé í WOW air. 

Í frétt­inni segir að það liggi fyrir að WOW air og Icelandair séu með marga sömu áfanga­staði bæði austan hafs og vestan og þar séu mögu­leikar á samnýt­ingu leiða­kerf­is.

Ekki sé vitað hvaða áhrif fækkun í flug­flot­anum muni hafa á Kefla­vík­ur­flug­velli. Fækkun í flota WOW air um þriðj­ung muni því án efa hafa áhrif á fyr­ir­tæki sem ann­ast marg­vís­lega þjón­ustu við vél­arn­ar.

Auglýsing

Í frétt Kjarn­ans þann 5. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn kom fram að stjórn Icelandair Group hefði gert kaup­­samn­ing um kaup á öllu hlutafé í flug­­­fé­lag­inu WOW air. Kaupin voru meðal ann­­ars gerð með fyr­ir­vara um sam­­þykki hlut­hafa­fundar Icelandair Group, sam­­þykki Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins og nið­­ur­­stöðu áreið­an­­leika­könn­un­­ar.

Í til­­kynn­ingu frá Icelandair Group vegna kaupanna kemur fram að sem gagn­­gjald fyrir hlutafé WOW Air muni hlut­hafar WOW air, að upp­­­fylltum skil­yrð­um, eign­­ast alls 272.341.867 hluti eða sem sam­svarar um 5,4 pró­­sent hluta­fjár Icelandair Group eftir við­­skipt­in. Þar af séu 178.066.520 hlutir eða sem nemur 3,5 pró­­sent hluta­fjár gagn­­gjald fyrir hið selda hluta­­fé. Það gagn­­gjald geti hækkað í 4,8 pró­­sent og lækkað í 0,0 pró­­sent út frá ákveðnum for­­sendum í tengslum við áreið­an­­leika­könn­un. 94.275.347 hlutir eða sem sam­svarar 1,8 pró­­sent hluta­fjár séu gefin út til selj­enda vegna breyt­ingar á víkj­andi láni í hluta­­fé. Selj­endur hafi skuld­bundið sig til að halda hlutum sínum í Icelandair Group í að minnsta kosti 6 mán­uði og helm­ing hlut­anna í að minnsta kosti 6 mán­uði til við­­bót­­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent