Aukinn áhugi smærri vaxtarfyrirtækja á því að skrá sig á íslenskan markað

Forstjóri Kauphallar Íslands segir að breytingar hafi orðið á markaði eftir að höftum var lyft. Erlent fjármagn hafi streymt inn um tíma og fyrirtæki nota sér markaðinn til að afla tug milljarða króna til að kaupa önnur.

Hringbraut 21. nóv
Auglýsing

Páll Harð­ar­son, for­stjóri Kaup­hallar Íslands, segir að stórar breyt­ingar hafi átt sér stað á íslenska mark­aðnum á und­an­förnum árum. Fyr­ir­tæki sem eru þar skráð séu meðal ann­ars farin að afla sér hárra fjár­muna á mark­aði til að kaupa önnur fyr­ir­tæki og mik­ill áhugi sé á meðal smærri vaxta­fyr­ir­tækja á skrán­ingu.

Þetta er meðal þess sem kom fram í við­tali Þórðar Snæs Júl­í­us­sonar við Pál í þætt­inum 21 á Hring­braut í síð­ustu viku. Hægt er að sjá stiklu úr þætt­inum hér að neð­an.

Staðan í íslensku Kaup­höll­inni er um margt óvenju­leg. Mörg fyr­ir­tækj­anna sem í henni eru hafa verið end­ur­skipu­lögð eftir að hafa lent í fjár­hags­erf­ið­leikum og Kaup­höllin síðan notuð til að koma þeim í nýtt eign­ar­hald. Þá eru flest fyr­ir­tækin sem skráð eru á markað þjón­ustu­fyr­ir­tæki en ekki hug­verks­fyr­ir­tæki sem þurfa aukið fjár­magn til að halda áfram að vaxa.

Auglýsing
Páll seg­ist hafa orðið var við mik­inn og auk­inn áhuga smærri vaxta­fyr­ir­tækja á því að skrá sig á mark­að. Kaup­höllin sé nú í fyrsta sinn í vetur með nám­skeið sem und­ir­býr fyr­ir­tæki fyrir skrán­ingu á First North mark­að­inn. 

Út frá stærð mark­að­ar­ins höfðu þau verið sátt með 5-10 félög sem hefðu sótt um. „Nú er það svo að við erum með 17 félög sem taka þátt í þessu prógrammi í vet­ur. Þetta eru þekk­ing­ar­fyr­ir­tæki og vaxt­ar­fyr­ir­tæki eig­in­lega ein­göngu. Smærri fyr­ir­tæki sem þurfa að afla sér fjár­magns.[...]Þarna hefur orðið að mínu viti merki­leg breyt­ing.“

Páll segir einnig að á síð­ustu 12-18 mán­uðum hafi orðið ákveðnar breyt­ingar á stöð­unni á aðal­mark­aði, sér­stak­lega eftir að gjald­eyr­is­höftum var aflétt. „Við sjáum inn­flæði erlends fjár­magns. Reyndar hefur það minnkað í ár. Og jafn­framt sjáum við að fyr­ir­tæki eru farin að nýta sér mark­að­inn með öðrum hætti en var. Á síð­ustu tólf mán­uðum höfum við séð fimm fyr­ir­tæki afla sér um 30 millj­arða á mark­aði til þess að kaupa önnur fyr­ir­tæki eða hlut í öðrum fyr­ir­tækj­um. Þetta er gjör­breyt­ing frá því sem var fyrir nokkrum árum.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent