Nokkrir þingmenn Flokks fólksins og Miðflokksins ræddu aksturskostnað og rasistagreinar Ásmundar Friðrikssonar þingmanns Sjálfstæðisflokksins á hljóðupptöku sem Stundin hefur undir höndunum.
„Ásmundur Friðriksson er ekki maður að mínu skapi,“ sagði Ólafur á upptökunni. „Þið takið eftir því að það er einn þáttur í honum sem stjórnmálamanni og það er það að hann hefur treyst sér til að fjalla um mjög viðkvæm málefni, sem „góða fólkinu“ er mjög á móti skapi.“
Ólafur Ísleifsson, þingmaður Flokks Fólksins, heyrist segja í upptökunni að markaður sé fyrir sjónarmið Ásmundar um innflytjendur í Suðurkjördæmi. Ásmundur hefur sem þingmaður Sjálfstæðisflokksins verið gagnrýndur fyrir málflutning sinn varðandi innflytjendur og hælisleitendur. Ummæli hans um málaflokkinn hafa vakið mikla athygli og þótt á skjön við það sem íslenskir stjórnmálamenn hafa látið hafa eftir sér opinberlega. Ásmundur hefur meðal annars skrifað stöðuuppfærslu þar sem hann veltir fyrir sér hvort múslimar sem búa á Íslandi hafi verið kannaðir með það að leiðarljósi að komast að því hvort þeir hefðu farið í „þjálfunarbúðir hryðjuverkamanna“.
„Og þegar hann er þarna í sínu öðru sæti [á lista flokksins] að skrifa það sem andstæðingar hans kalla rasistagreinar. Ein slík grein hefði mögulega getað dregið Unni Brá [Konráðsdóttur, fyrrverandi þingmann] í framboð. Hennar eini séns var að Ásmundur mundi herða á sínu. Það er augljós markaður fyrir þessi sjónarmið í Suðurkjördæmi. Það kom mjög skýrt fram í þessu fjölmennasta prófkjöri sem haldið var fyrir kosningarnar,“ segir Ólafur.
„Feillinn sem Ási gerði var að hætta að keyra“
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Gunnar Bragi Sveinsson, Bergþór Ólason og Anna Kolbrún Árnadóttir voru á Klaustur bar 20. nóvember síðastliðinn og ræddu við Ólaf og Karl Gauta Hjaltason, þingmenn Flokks fólksins. Orðaskiptin voru mjög hávær, áttu sér stað í vitna viðurvist og náðust að hluta á upptöku. Ummæli af upptökunni voru birt á vefum Stundarinnar og DV í gær og í morgun.
Áður en skoðanir Ásmundar í innflytjendamálum bárust í tal höfðu þingmennirnir rætt aksturskostnað hans og hvort hann hefði brugðist rétt við gagnrýni sem hann hlaut í byrjun árs. En mikið hefur verið fjallað um aksturskostnað Ásmunds sem nam 4,6 milljónir króna árið 2017 í fjölmiðlum og á Alþingi.
Í upptökunni segir Anna Kolbrún Árnadóttir, þingmaður Miðflokksins, að Ásmundur hafi játað á sig sökina með því að minnka aksturinn. „Feillinn sem Ási gerði var að hætta að keyra,“ sagði þá Anna Kolbrún. „Hann helmingaði aksturinn á milli ára. Hann játaði sökina.“
Ásmundur byrjaði í kjölfar gagnrýninnar að nota bílaleigubíl í stað síns eigin bíls, samkvæmt reglum Alþingis. Í framhaldinu af þessum umræðum sagðist Bergþór Ólason hafa heyrt þá hugmynd að Ásmundur hefði átt að setja bílaleigubílinn á búkka í bílskúrnum. „Þar væri hann á 100 kílómetra hraða alltaf þegar hann væri sofandi. Þannig að hverja nótt þegar Ási er sofandi þá keyrir bíllinn svona 700 kílómetra. Þannig að hann mun sýna okkur það að hann keyrir jafnvel meira.“ Loks sagði Sigmundur Davíð: „Hann virkar hræddur almennt.“