Ef einstök stéttarfélög meta það svo að það sé skynsamlegra vegna aðstæðna hjá þeim að hafa umboðið hjá sér og eiga viðræður beint við atvinnurekendur þá geta þau að sjálfsögðu gert það hvenær sem er.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Starfsgreinasambandinu.
Eins og fram hefur komið í fréttum hafa Efling og Verkalýðsfélag Akraness ákveðið að kljúfa sig frá samfloti með Starfsgreinasambandinu í kjaraviðræðunum og mun kjaradeilunni vera vísað til Ríkissáttasemjara á næstu dögum.
Í tilkynningunni segir að innan raða Starfsgreinasambands Íslands séu 19 stéttarfélög rúmlega 57 þúsund félagsmanna um land allt. Samninganefndir hvers félags um sig fari með samningsumboð fyrir hönd sinna félagsmanna en hafi oft falið sameiginlegri samninganefnd SGS að fara með umboðið.
Sambandið muni halda viðræðum áfram af krafti, í góðri samvinnu við öll félög innan sambandsins, í þeim tilgangi að ná fram réttmætum kröfum til að bæta hag sinna félagsmanna.