FME auglýsir eftir fólk sem gæti verið skipað í bráðabirgðastjórnir fjármálafyrirtækja

Fjármálaeftirlitið vill fá áhugasama sérfræðinga til að gefa kost á sér til að taka að sér afmörkuð verkefni fyrir sína hönd, komi slík upp. Þeir sem vinna hjá eftirlitsskyldum aðilum eins og bönkum eða öðrum fjármálafyrirtækjum koma ekki til greina.

fme.jpg
Auglýsing

Fjár­mála­eft­ir­litið (FME) aug­lýsti í gær eftir áhuga­sömum sér­fræð­ingum utan stofn­un­ar­innar til að taka að sér afmörkuð verk­efni, skyldu slík koma upp. 

Í frétt á vef FME segir að stofn­unin hafi til að mynda heim­ild til að skipa sér­fræð­ing til að athuga til­tekna þætti í starf­semi eða rekstri eft­ir­lits­skyldra aðila, sem eru bankar og önnur fjár­mála­fyr­ir­tæki, eða til að hafa að öðru leyti sér­tækt eft­ir­lit með eft­ir­lits­skyldum aðil­um.

Í frétt­inni stendur enn fremur að FME hafi heim­ild til að skipa bráða­birgða­stjórn yfir eft­ir­lits­að­ila „við sér­stakar aðstæð­ur“.

Auglýsing

Þeir sem hafa áhuga á að sinna ofan­greindum verk­efnum fyrir FME, skyldu þau koma upp, geta skilað fer­il­skrám sínum til þess, en auk þess geta fyr­ir­tæki gefið kost á til­teknum starfs­mönnum sínum til slíkra starfa. Í frétt­inni segir að leitað sé „að ein­stak­lingum með fjöl­breytta reynslu og þekk­ingu á sviði lög­fræði, fjár­mála­mark­aða, rekst­urs og stjórn­un­ar. Ekki er tekið við fer­il­skrám þeirra sem starfa hjá eft­ir­lits­skyldum aðil­u­m.“

FME getur vikið stjórn fjár­mála­fyr­ir­tækis frá

Heim­ild FME til að skipa bráða­birgða­stjórn yfir eft­ir­lits­skyldum aðila byggir á inn­leið­ingu til­skip­ana Evr­ópu­sam­bands­ins í íslenskan rétt á síð­asta ári. Sam­kvæmt þeim getur FME vikið stjórn lána­stofn­unar eða verð­bréfa­fyr­ir­tækis frá í heild eða hluta, sem og fram­kvæmda­stjóra þess, hafi fyr­ir­tækið brotið alvar­lega gegn lögum eða stjórn­valds­fyr­ir­mælum eða ef alvar­lega athuga­semdir hafi verið gerðar við stjórnun þess.

Telji FME að brott­vikn­ing stjórnar og fram­kvæmda­stjóra sé ekki full­nægj­andi til að rétta af fjár­hags­lega stöðu við­kom­andi fyr­ir­tækis þá getur stofn­unin skipað bráða­birgða­stjórn­anda eða eftir atvikum -stjórn. Skip­un­ar­tími slíkra skal að hámarki vera eitt ár en við sér­stakar aðstæður er hægt að fram­lengja skip­un­ar­tím­ann. Það er FME sem leggur mat á hæfi þess sem skip­aður er í stjórn­ina. 

Bráða­birgða­stjórn­andi sem FME skipar er ein­ungis ábyrgur fyrir tjóni sem hann veldur í störfum sínum af ásetn­ingi eða stór­kost­legu gáleysi. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent