Efling hefur stofnað nýtt svið sem kallað er félagssvið. Hlutverk þess er fyrst og fremst að blása nýju lífi í herskáa stéttabaráttu með virkri þátttöku félagsmanna sjálfra. Ætlunin er þannig að mynda aukið mótvægi gegn síauknum yfirráðum fyrirtækjaeigenda í samfélaginu.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Eflingu sem send var út í dag.
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, segir að verkalýðshreyfingin hafi of lengi verið föst í því að bregðast við vandamálunum eftir á og sé orðin of mikil þjónustustofnun. „Félagssvið Eflingar er hugsað til að snúa vörn í sókn og ganga lengra í að virkja félagsmenn í baráttunni en hefur þekkst áratugum saman. Ég er gríðarlega stolt af félagssviði Eflingar og veit að það mun veita okkur mikinn styrk í kjarabaráttu næstu ára,“ segir hún.
Framkvæmdastjóri Eflingar, Viðar Þorsteinsson, segir að félagssvið sé líklega stærsta nýjungin í starfi Eflingar síðan ný forysta tók við í vor. „Um leið og við styrkjum reglubundna þjónustu okkar við félagsmenn á sviðum sem fyrir eru, mun félagssvið auka virkni félagsmanna sjálfra í stéttabaráttunni. Vonandi ryður félagssvið Eflingar braut fyrir stóreflda baráttu víðar í hreyfingunni og í samfélaginu.“