Halldór Benjamín Þorbergsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir samtökin reiðubúin að fallast á kröfu verkalýðsfélaganna um afturvirkni kjarasamninga til 1. janúar, að því gefnu að samið verði fyrir næstu mánaðamót og ef samið verði á „skynsamlegum nótum“. Frá þessu er greint í Fréttablaðinu í dag.
„Til þess að liðka fyrir viðræðum og lausn geta Samtök atvinnulífsins fallist á að gildistaka kjarasamninga verði afturvirk frá 1. janúar 2019. Skilyrðið fyrir því er þó að samningur náist fyrir lok þessar mánaðar sem taki mið af svigrúmi atvinnulífsins til launahækkana. Þetta tilboð fellur auðvitað niður ef viðræðunum verður slitið og boðað til verkafalla enda ber allt samfélagið kostnað af þeirra aðgerð,“ segir Halldór.
Funda í annað sinn hjá ríkissáttasemjara í dag
Þann 20. desember síðastliðinn tilkynntu VR, Efling og Verkalýðsfélag Akraness að félögin yrðu í samstarfi í yfirstandandi kjarasamningum og vísuðu í sameiningu viðræðum við Samtök atvinnulífsins til ríkissáttasemjara. Fyrsti fundurinn hjá ríkissáttasemjara í kjaradeilu SA við Eflingu, VR og Verkalýðsfélag Akraness fór fram á milli jóla og nýárs en á þeim fundi var ríkissáttasemjara fyrst og fremst að kalla eftir upplýsingum frá deiluaðila. Í dag fer fram síðan fram annar samningafundur hjá ríkissáttasemjara.
Efling, VR og Verkalýðsfélag Akraness tilkynntu í lok desember að félögin gerðu kröfu um að kjarasamningar við Samtök atvinnulífsins muni gilda frá og með 1. janúar óháð því hvenær samningar nást. Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, sagði að afturvirkni samninga væri ófrjávíkjanleg krafa félaganna þriggja.
Halldór Benjamín segir að krafan um afturvirkni sé ekki ný af nálinni. Hann segir kröfuna byggja á norrænni fyrirmynd þar sem stéttarfélög skilgreini það sem eitt af sínum mikilvægustu hlutverkum að gera kjarasamninga sem raski ekki samkeppnisstöðu meginatvinnugreinanna.
Að lokum segir Halldór að ákvarðanir um afturvirkni og önnur stór efnisatriði líkt og launahækkanir og samningstíma verði teknar í lok viðræðna.