Arion banki og Thorsil eru í yfirlýsingu frá meirihluta bæjarfulltrúa í Reykjanesbæ hvött til að falla frá öllum áformum um uppbyggingu og rekstur kísilmálmverksmiðja í Helguvík.
Frá þessu er greint á vef Víkurfrétta.
Bæjarfulltrúarnir hvetja þessa aðila til að taka frekar þátt í annarri atvinnuuppbyggingu í sátt við fólkið í sveitarfélaginu og umhverfið. Yfirlýsingin var samþykkt á bæjarstjórnarfundi í Reykjanesbæ í dag.
Félagið Stakksberg ehf., sem er í eigu Arion banka, vinnur að því að koma verksmiðju af stað á nýjan leik, sem áður var í eigu United Silicon, sem fór í gjaldþrot skömmu eftir að hún hóf starfsemi.
Í yfirlýsingu segir, samkvæmt frétt Víkurfrétta: „Kísilveri United Silicon, sem hóf starfsemi sína þann 13. nóvember 2016 var lokað 1. september 2017 og tekið til gjaldþrotaskipta 22. janúar 2018. Þann tíma sem verksmiðjan var í rekstri olli hún íbúum sveitarfélagsins verulegum óþægindum og jafnvel veikindum, vegna mengunar sem af henni stafaði. Þá urðu margir fyrir verulegum fjárhagslegum skakkaföllum í kjölfar gjaldþrots verksmiðjunnar, s.s. starfsmenn, verktakar, hluthafar og sveitarfélagið Reykjanesbær. Nú hafa verið kynntar áætlanir um að hefja rekstur verksmiðjunnar að nýju og ætlar nýr eigandi, Arion Banki, að eyða verulegum fjármunum í lagfæringar á verksmiðjunni. Þá áformar hlutafélagið Thorsil einnig að hefja rekstur samskonar verksmiðju á sama stað í Helguvík, um 2 km frá þéttri byggð, steinsnar frá leikskóla og grunnskóla í bænum.
Ljóst er að íbúar Reykjanesbæjar hafa af þessu verulegar áhyggjur í ljósi fyrri reynslu af slíkum rekstri. United Silicon hafði einungis komið einum ofni í gang þann tíma sem fyrirtækið starfaði en áætlanir gera ráð fyrir að ofnarnir geti alls orðið sjö með tilheyrandi mengun.
Undirritaðir bæjarfulltrúar taka fyllilega undir áhyggjur annarra íbúa og telja að nú sé orðið ljóst að starfsemi af þessu tagi henti alls ekki í nálægð við þétta íbúabyggð. Sökum þess viljum við skora á hlutaðeigandi aðila, bæði Arion banka og Thorsil að falla frá öllum áformum um uppbyggingu og rekstur kísilmálmverksmiðja í Helguvík og hvetja þá til að taka frekar þátt í annarri atvinnuuppbyggingu í sátt við fólkið í sveitarfélaginu og umhverfið.“ Undir yfirlýsinguna rita allir bæjarfulltrúar meirihlutans, auk bæjarfulltrúa Miðflokksins.
Sjálfstæðisflokkurinn, sem er í minnihluta í bæjarstjórn, tekur ekki undir yfirlýsingu meirihlutans.
Í bókun hans segir að fjölbreyttar stoðir verði að vera undir atvinnulífinu í Reykjanesbæ. Hann segir þó að engann afslátt eigi að gefa á umhverfisþáttum þegar komi að uppbyggingunni í Helguvík. „Saga kísilvers United Silicon frá því það hóf starfsemi sína 2016 og þá tíu mánuði sem það starfaði er okkur öllum kunn og ljóst er að þau mistök sem gerð voru í undirbúningi og rekstri verskmiðjunnar mega ekki endurtaka sig. Íbúar í Reykjanesbæ þekkja mikilvægi þess að hafa fjölbreytt atvinnulíf. Rúmlega þúsund manns misstu atvinnuna við brotthvarf Varnarliðsins fyrir tólf árum. Í bankahruni tveimur árum síðar misstu enn fleiri atvinnuna og nú síðast fyrir tveimur mánuðum var á þriðja hundrað manns sagt upp störfum á Keflavíkurflugvelli vegna óvissu í flugrekstri. Bæjarfulltrúar D-listans geta því ekki tekið undir áskorun meirihluta bæjarstjórnar um að Stakksberg og Thorsil falli frá áformum sínum um uppbyggingu kísilmálmverksmiðja í Helguvík.
D-listinn leggur, eftir sem áður, áherslu á að það verði enginn afsláttur gefinn af umhverfiskröfum og eftirliti með uppbyggingu og atvinnustarfsemi í Helguvík. Bæjarfulltrúar D-listans skora á þessi sömu fyrirtæki að eiga ríkara samráð við íbúa um framvindu mála og tryggja að unnið verði að uppbyggingu í Helguvík sem er í sátt við íbúa og umhverfi Reykjanesbæjar,“ segir í bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjórna.
Í bókun fulltrúa frá Frjálsu afli er tekið, fram að ef uppbyggingin eigi að fara fram, þurfi að tryggja að íbúar finni ekki fyrir óþægindum eða mengun. Besta fáanlega búnað þurfi að nota, til að koma í veg fyrir mengun.