Vissi ekki af endurkomu Gunnars Braga og Bergþórs

Skilaboð Lilju Alfreðsdóttur til Gunnars Braga Sveinssonar á þingi í dag voru þau að hún væri ekki sátt við framkomu hans.

Lilja Alfreðsdóttir
Lilja Alfreðsdóttir
Auglýsing

Lilja Alfreðs­dótt­ir, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, vissi ekki af end­ur­komu Gunn­ars Braga Sveins­sonar og Berg­þórs Óla­son­ar, þing­manna Mið­flokks­ins, fyrr en hún sá þá í þing­sal í morg­un. Þetta kom fram í útvarpsfréttum RÚV í dag. 

Gunnar Bragi og Berg­þór til­kynntu í morgun að þeir myndu taka sæti á þingi og tóku þeir þátt í þing­störfum í dag. Meðal ann­ars voru þeir við­staddir óund­ir­búnar fyr­ir­spurn­ir.

Lilja segir í sam­tali við RÚV afar mik­il­vægt að þing­störf haldi áfram og þeir sem hlut eigi að máli í Klaust­ur­mál­inu fari ekki með dág­skrár­valdið þar. 

Auglýsing

Athygli vakti á Alþingi í morgun þegar Lilja stóð upp úr sæti sínu tvisvar, með tæp­lega tveggja mín­útna milli­bili, og hvísl­aði ein­hverju að Gunn­ari Braga. Skömmu seinna yfir­gaf Lilja þingsal­inn, eins og sjá má á mynd­bandi í frétt RÚV frá því fyrr í dag. 

Lilja ræðir við Gunnar Braga í morgun Mynd: Skjáskot/RÚV

Í sam­tali við RÚV í dag segir hún að skila­boð hennar til Gunn­ars Braga hefðu verið að hún væri ekki sátt við þessa fram­komu. „Það sem ég segi er að það sé mik­il­vægt að störf þings­ins haldi áfram.“

Þegar hún var spurð hvort störf þings­ins getu haldið áfram þá segir hún: „Fyrir mitt leyti er brýnt að fólk standi með sjálfu sér. Ég veit hvernig mér líður með þetta mál og ég segi bara enn og aft­ur: „Þeir eiga ekki að hafa dag­skrár­valdið í þessu sam­fé­lag­i.““

Berg­þór og Gunnar Bragi viku báðir sæti á Alþingi eftir að birtar voru upp­tökur af sam­ræðum þeirra á Klaust­ur­bar þann 20. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn. Í sam­tal­inu við­höfðu þeir niðr­andi ummæli um Lilju. 

Hún sagð­ist í Kast­ljós­við­tali í byrjun des­em­ber upp­lifa sam­tal Sig­mundar Dav­íðs Gunn­laugs­son­ar, Gunn­ars Braga Sveins­sonar og Berg­þórs Óla­sonar um hana sem árás. „Ég upp­lifi þetta sem algjört ofbeldi. Þeir eru ofbeld­is­menn. Ég segi bara að þetta er alveg skýrt í mínum huga. Ofbeld­is­menn hafa ekki dag­skrár­vald í íslensku sam­fé­lag­i,“ sagði hún.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent