Segir Steingrím „beita bellibrögðum“ til að koma Klaustursmáli til siðanefndar

Gunnar Bragi Sveinsson segir að hann og aðrir úr Klausturmálinu geti ekki bara vikið af þingi vegna þess að „ af því að pólitískir andstæðingar telja vont að vera nálægt okkur.“

Gunnar Bragi Sveinsson
Auglýsing

Gunnar Bragi Sveins­son, þing­maður Mið­flokks­ins, segir að hann og aðrir þing­menn séu þjóð­kjörnir af „ákveðnu fólki“ til að sitja á Alþingi. „Ef það er þannig að ein­hver getur ekki starfað með okk­ur, alveg sama hvað það er, þá getum við ekki bara vikið út af þingi af því að póli­tískir and­stæð­ingar telja vont að vera nálægt okk­ur.“

Þetta kom fram í við­tali við hann og Berg­þór Óla­son í við­tali við Lindu Blön­dal í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut á fimmtu­dags­kvöld þegar Gunnar Bragi ræddi hvort hann ætti að segja af sér eða ekki vegna Klaust­ur­máls­ins.

Auglýsing
Bergþór sagði í þætt­inum að það hafi komið upp í huga sinn að segja af sér en að hann hafi þó ekki dvalið lengi við þá hugs­un. 

Hann sé þrátt fyrir allt kos­inn af sínum kjós­end­um. Gunnar Bragi sagði að í hans til­viki hafi alltaf legið ljóst fyrir að hann hafi ætlað að snúa til baka. Hægt er að sjá stiklu úr þætt­inum hér að neð­an.



Gunnar Bragi sagði að þeir væru búnir að vera mjög auð­mjúkir vegna máls­ins. „Við erum búnir að biðj­ast afsök­un­ar[...] ef menn eru hins vegar ekki til­búnir að fyr­ir­gefa okkur þá er það þeirra mál. Við erum kjörnir af ákveðnum hópi fólks til að sinna störfum okkar og ég hef með­als ann­ars nýtt tím­ann til að tala við þetta fólk. Það er ein­róma áskorun þeirra að ég skuli aftur kom­a.“

Báðir við­mæl­end­urnir sögðu tíma­setn­ingu end­ur­komu sinnar á Alþingi vera vegna þess að verið sé að reyna að koma máli þeirra til siða­nefndar með hætti sem þeir telji óboð­leg­an.

Gunnar Bragi sagð­i:„­Síðan ger­ist það vit­an­lega að það eiga sér stað atburðir í þing­inu sem að við teljum að eigi sér fá dæmi ef nokkur þar sem for­seti Alþingis fer fram með slíkum hætti að í fyrsta lagi að reyna að breyta lögum eftir á.“

Hann telji að Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþing­is, sé að reyna að breyta lögum þannig að „hann gæti komið okkur með ein­hverjum belli­brögðum til þess­arar siða­nefnd­ar. Fyrir okkur var eng­inn annar val­kostur heldur en að koma inn á þing og þá að reyna að verj­ast þessum fyr­ir­ætl­un­um. Verj­ast for­seta Alþingis sem fer fram með mjög miklu offorsi í þessu máli.“

Gunnar Bragi sagði enn fremur að Stein­grímur J. virt­ist vera búinn að setja sér það heilaga mark­mið að málið skyldi fara til siða­nefndar með öllum ráð­um.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent