Vegna formannsskipta í umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis lýsa fjórir flokkar – Samfylkingin, Píratar, Viðreisn og Flokkur fólksins – yfir miklum vonbrigðum með að ríkisstjórnarflokkarnir VG, Sjálfstæðisflokkur og Framsókn, hafi stutt tillögu Miðflokksins sem lagði til brot á samkomulagi stjórnar og stjórnarandstöðu um skiptingu á formennsku í nefndum.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá flokkunum fjórum sem send var út í dag.
Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins, steig til hliðar úr formannssæti í umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis í morgun. Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, tók við formennsku í nefndinni tímabundið á meðan reynt er að finna lausn í málinu sem allir geta sætt sig við, samkvæmt tilkynningu frá Vinstri grænum, Framsóknarflokknum og Sjálfstæðisflokknum sem send var til fjölmiðla í morgun og fjallað var um á Kjarnanum.
„Fyrir umhverfis- og samgöngunefnd lágu tvær tillögur enda ljóst að fulltrúar Samfylkingar og Viðreisnar, auk Rósu Bjarkar Brynjólfsdóttur þingmanns VG og Björns Leví Gunnarssonar, áheyrnarfulltrúa Pírata, töldu óásættanlegt að fulltrúi Miðflokksins gengi að trúnaðarstörfum sínum á Alþingi sem vísum eftir framgöngu sína á Klaustri eins og alræmt er. Krafa þeirra um formannaskipti hafði verið borin fram á síðasta fundi nefndarinnar en þá verið vísað frá af meirihlutanum. Fulltrúar minnihlutans höfðu margsinnis lagt til að Miðflokkur tilnefndi einhvern þeirra þriggja þingmanna flokksins sem ekki höfðu tekið þátt í samkomunni á Klaustri,“ segir í tilkynningunni.
Þá kemur fram að minnihlutinn hafi einnig ítrekað lagt til að formannsembættið færist til á næsta flokk í stjórnarandstöðunni á meðan Miðflokkurinn leysir ekki úr sínum málum og lögðu því til að fulltrúi Viðreisnar tæki við formennsku fyrir hönd minnihlutans. Fulltrúi Miðflokks hafi hins vegar kosið að leggja til að formennska færi heldur til stjórnarliða sem meirihlutinn samþykkti.
„Við formannsskiptin lágu fyrir tvær tillögur um embætti formanns, 1. varaformanns og 2. varaformanns. Fyrri tillagan var borin upp af fulltrúa Samfylkingar, Helgu Völu Helgadóttur, en sú seinni frá fulltrúa Miðflokksins, Bergþóri Ólasyni. Greidd voru atkvæði um hvert embætti fyrir sig og í öllum tilfellum greiddu fulltrúar stjórnarflokkanna þriggja, að Rósu Björk Brynjólfsdóttur undanskilinni, atkvæði með tillögu Miðflokksins sem fól í sér að öll embættin færu til stjórnarflokkana þriggja.
Afstaða hins nýja meirihluta liggur nú fyrir. Stjórnarflokkarnir nýta sér þær fordæmalausu aðstæður sem uppi eru og varða virðingu Alþingis og störf til að ganga á bak orða sinna varðandi samkomulag við stjórnarandstöðuna um skiptingu formennsku í nefndum,“ segir í tilkynningunni.