Bergþór hættir sem formaður í umhverfis- og samgöngunefnd

Bergþór Ólason hefur nú kosið að stíga til hliðar úr formannssæti í umhverfis- og samgöngunefnd en Jón Gunnarsson mun taka við formennsku tímabundið. Nefndin hefur verið óstarfhæf um tíma og hefur það truflað störf á Alþingi.

Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins.
Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins.
Auglýsing

Berg­þór Óla­son, þing­maður Mið­flokks­ins, stígur til hliðar úr for­manns­sæti í umhverf­is- og sam­göngu­nefnd Alþing­is. Jón Gunn­ars­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, mun taka við for­mennsku í nefnd­inni tíma­bundið á meðan reynt er að finna lausn í mál­inu sem allir geta sætt sig við. Ari Trausti Guð­munds­son tekur við sem 1. vara­for­maður og Líneik Anna Sæv­ars­dóttir verður 2. vara­for­mað­ur.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Vinstri græn­um, Fram­sókn­ar­flokknum og Sjálf­stæð­is­flokkn­um.

Í henni kemur jafn­framt fram að umhverf­is- og sam­göngu­nefnd hafi nú verið óstarf­hæf um tíma og hafi það truflar störf Alþing­is. Ekki hafi verið fundað í nefnd­inni síðan 29. jan­úar síð­ast­lið­inn. Þing­flokks­for­menn allra flokka hafi leitað leiða til að vinna úr stöð­unni, án árang­ur­s. 

Auglýsing

Sam­kvæmt sam­komu­lagi um nefnd­ar­for­mennsku minni­hlut­ans kom þessi nefnd­ar­for­mennska í hlut Mið­flokks­ins en fflokk­ur­inn hefur ekki viljað skipta um sinn full­trúa í nefnd­inni.

„Hluti af ábyrgð þeirra sem hafa meiri­hluta á Alþingi er að tryggja að störf þings­ins geti gengið eðli­lega fyrir sig. Því telja þing­menn stjórn­ar­flokk­anna eðli­legt að þetta sé lausnin á meðan sam­komu­lag næst ekki um annað fyr­ir­komu­lag.

Það er öllum ljóst að um tíma­bundna lausn sé að ræða til að koma störfum nefnd­ar­innar í rétt horf. Ef og þegar aðstæður breyt­ast eru stjórn­ar­flokk­arnir reiðu­búnir að end­ur­skoða þessa stöðu og telja raunar mik­il­vægt að slíkt end­ur­mat eigi sér stað fyrir þing­lok. Þar sem hér er um tíma­bundna ráð­stöfun að ræða líta stjórn­ar­flokk­arnir ekki svo á að taka þurfi upp allt sam­komu­lag stjórnar og stjórn­ar­and­stöðu um for­mennsku í fasta­nefndum Alþingis að svo stödd­u,“ segir í til­kynn­ing­unn­i. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent