Tillögu um að Bergþór myndi stíga til hliðar sem formaður vísað frá

Bergþór Ólason stýrði fundi umhverfis- og samgöngunefndar í morgun. Björn Leví Gunnarson, þingmaður Pírata, yfirgaf fundinn áður en honum lauk, ósáttur við að Bergþór skyldi sitja áfram sem formaður.

Bergþór Ólason
Auglýsing

Til­lögu um að Berg­þór Óla­son, þing­maður Mið­flokks­ins, myndi ekki sitja áfram sem for­maður umhverf­is- og sam­göngu­nefndar var vísað frá á fund­i ­nefnd­ar­inn­ar í morg­un. Frá þessu er greint á Rúv. Í dag var fyrsti fundur umhverf­is- og ­sam­göngu­nefnd­ar eftir að Berg­þór tók sæti á Alþingi á ný í síð­ustu viku. 

Vilja ekki að Berg­þór verði áfram for­maður

Fjallað hefur verið um að and­stöðu nokkra nefnd­ar­manna umhverf­is- og sam­göngu­nefndar við for­mennsku Berg­þórs síð­ustu daga en Berg­þór var einn þeirra þing­manna sem hvað mest fór fyrir á Klaust­ur­bar í nóv­em­ber. Í kjöl­farið tók Berg­þór sér leyfi frá þing­störfum en sneri aftur á þing í síð­ustu viku. Berg­þór stýrði fund­inum í morgun en fund­ur­inn í dag var fyrsti fundur umhverf­is- og sam­göngu­nefndar eftir að Berg­þór sneri aftur á þing. ­Sam­kvæmt upp­lýs­ingum Rúv kom fram til­laga á fund­inum að Berg­þór sæti ekki áfram sem for­mað­ur, en þeirri til­lögu var vísað frá. 
Auglýsing

Afgreiddu sam­göngu­á­ætlun úr nefnd­inni í dag

Jón Gunn­ars­son, vara­for­maður nefnd­ar­inn­ar, stýrði fund­in­um ­síðust­u ­tíu mín­út­urn­ar, sam­kvæmt upp­lýs­ingum Rúv. Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, yfir­gaf fund­inn tíu mín­útum áður en hann lauk, afar ósáttur við að Berg­þór Óla­son ætl­aði að sitja áfram sem for­maður nefnd­ar­inn­ar. Í frétt Rúv segir að þrátt fyrir þetta hafi tek­ist að afgreiða sam­göngu­á­ætlun úr nefnd­inni, en í áætl­un­inni eru meðal ann­ars fyr­ir­ætl­anir um upp­bygg­ingu á vega­kerf­inu með­ ­veggjöld­um.

Upp­fært: Sam­kvæmt frétt Vísis lagð­i Helga Vala fram til­lögu með stuðn­ingi Hönnu Katrínar Frið­riks­son, for­manns þing­flokks Við­reisn­ar, og Rósu Bjarkar Brynj­ólfs­dótt­ur, þing­manns Vinstri grænna, um að greidd yrðu atkvæði um for­mann nefnd­ar­innar en þeirri til­lögu var vísað frá af meiri­hluta nefnd­ar­inn­ar. 

Jón Gunn­ars­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, lagði fram frá­vís­un­ar­til­lög­una en að sögn Helgu Völu var hún studd af Líneik Önnu Sæv­ars­dótt­ur, þing­manni Fram­sókn­ar­flokks­ins, Vil­hjálmi Árna­syni, þing­manni Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Ara Trausta Guð­munds­syni, þing­manni VG, og þeim Berg­þóri og Karli Gauta. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent