Vilja ekki að Bergþór leiði áfram umhverfis- og samgöngunefnd

Nefndarmenn umhverfis- og samgöngunefndar vilja ekki að Bergþór Ólason sitji áfram sem formaður nefndarinnar. Þingflokksformenn munu fara yfir stöðu nefndarinnar eftir helgi en líklegt þykir að Miðflokkurinn velji nýjan formann í stað Bergþórs.

Bergþór Ólason
Bergþór Ólason
Auglýsing

Full­trúar Við­reisn­ar, Sam­fylk­ing­ar­innar og Vinstri grænna sem sitja í umhverf­is- og sam­göngu­nefnd hafa lýst því yfir að þau vilji ekki að Berg­þór Óla­son, þing­maður Mið­flokks­ins, verði áfram for­maður nefnd­ar­inn­ar. Þing­flokks­for­menn auk for­seta þings­ins munu ræða for­mennsku nefnd­ar­innar á fundi  næst­kom­andi mánu­dag, þar sem ljóst sé að Berg­þór njóti ekki meiri­hluta­stuðn­ings til að sitja í nefnd­inni. Frá þessu er greint í Frétta­blað­inu í dag. 

Segir Berg­þór vita að hann hafi ekki stuðn­ing sem for­maður

Berg­þór Óla­son og Gunnar Bragi Sveins­son, þing­menn Mið­flokks­ins, til­kynntu í gær­morgun að þeir myndu taka aftur sæti á þingi. Þeir tóku óvænt þátt í þing­störfum í gær og voru meðal ann­­ars við­staddir óund­ir­­búnar fyr­ir­­spurn­­ir.

Á þing­flokks­for­manna­fundi síð­degis í gær voru mál­efni þings­ins og vinnu­frið­ur­ rædd. Meðal þess sem rætt var á fund­inum voru mál­efni umhverf­is- og sam­göngu­nefnd­ar en Berg­þór er for­maður nefnd­ar­inn­ar. ­Ari Trausti Guð­munds­son, þing­maður Vinstri grænna og nefnd­ar­maður umhverf­is- og sam­göngu­nefnd, segir í sam­talti við Frétta­blaðið í dag að Berg­þóri sé ljóst að hann hafi ekki stuðn­ing til áfram­hald­andi setu sem for­maður í nefnd­inn­i. 

„Berg­þór kemur og hefur rétt til að ganga inn í nefnd­ina og rétt til að taka sitt sæti sem hann hafði. Við getum ekki sagt nei. Málið er að hann er þarna sam­kvæmt sam­komu­lagi minni­hluta­flokk­anna,“ segir Ari Trausti Guð­munds­son.

Hann segir það vera stað­reynd að stjórn­ar­and­staðan hafi fengið þrjá for­manns­stóla í nefndir þings­ins og raðað þar niður eftir þing­styrk. „Þau fengu þrjá for­menn nefnda eftir ákveðnu sam­komu­lagi og því er það þeirra að leysa þetta mál og nú hefur bæði full­trúi Við­reisnar og Sam­fylk­ingar og einnig full­trúi Vinstri grænna lýst yfir að þau vilji ekki að hann leiði þetta áfram og það er honum alveg ljóst,“ segir Ari Trausti. 

Auglýsing


Lík­legt að ein­hver annar úr Mið­flokknum komi í hans stað

Ari Trausti Guðmundsson, þingmaður vinstri grænna.

Ari Trausti segir nokkra mögu­leika í stöð­unni en að minni­hluta­flokk­arnir verði að leysa málið sín á milli. „Við þurfum ekk­ert að kjósa því ef minni­hlut­inn ræðir saman þá getur hann stigið til hliðar og ein­hver annar úr Mið­flokknum komið inn í hans stað.“

„Við í meiri­hlut­anum erum í raun og veru ekki að vasast með þetta mál, þetta er í höndum minni­hlut­ans. En þetta verður rætt í hópi ­þing­flokks­for­manna á mánu­dag,“ segir Ari Trausti að lok­um. 

Þing­flokks­for­menn og þing­for­seta munu fara yfir stöðu nefnd­ar­innar eftir helgi en lík­leg­t ­þyk­ir að Berg­þór þurfi að hætta sem for­maður til að þess vinnu­friður á þing­i ­ná­ist. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent