Lýsa yfir vonbrigðum með að ríkisstjórnarflokkarnir hafi stutt tillögu Miðflokksins

Vegna formannsskipta í umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis lýsa fjórir flokkar yfir miklum vonbrigðum með að ríkisstjórnarflokkarnir hafi stutt tillögu Miðflokksins um skiptingu á formennsku í nefndum.

Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins.
Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins.
Auglýsing

Vegna for­manns­skipta í umhverf­is- og sam­göngu­nefnd Alþingis lýsa fjórir flokkar – Sam­fylk­ing­in, Pírat­ar, Við­reisn og Flokkur fólks­ins – yfir miklum von­brigðum með að rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir VG, Sjálf­stæð­is­flokkur og Fram­sókn, hafi stutt til­lögu Mið­flokks­ins sem lagði til brot á sam­komu­lagi stjórnar og stjórn­ar­and­stöðu um skipt­ingu á for­mennsku í nefnd­um.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá flokk­unum fjórum sem send var út í dag.

Berg­þór Óla­­son, þing­­maður Mið­­flokks­ins, steig til hliðar úr for­­manns­­sæti í umhverf­is- og sam­­göng­u­­nefnd Alþing­is í morg­un. Jón Gunn­­ar­s­­son, þing­­maður Sjálf­­stæð­is­­flokks­ins, tók við for­­mennsku í nefnd­inni tíma­bundið á meðan reynt er að finna lausn í mál­inu sem allir geta sætt sig við, sam­kvæmt til­kynn­ingu frá Vinstri græn­um, Fram­­sókn­­ar­­flokknum og Sjálf­­stæð­is­­flokkn­um sem send var til fjöl­miðla í morgun og fjallað var um á Kjarn­an­um.

Auglýsing

„Fyrir umhverf­is- og sam­göngu­nefnd lágu tvær til­lögur enda ljóst að full­trúar Sam­fylk­ingar og Við­reisn­ar, auk Rósu Bjarkar Brynj­ólfs­dóttur þing­manns VG og Björns Leví Gunn­ars­son­ar, áheyrn­ar­full­trúa Pírata, töldu óásætt­an­legt að full­trúi Mið­flokks­ins gengi að trún­að­ar­störfum sínum á Alþingi sem vísum eftir fram­göngu sína á Klaustri eins og alræmt er. Krafa þeirra um for­manna­skipti hafði verið borin fram á síð­asta fundi nefnd­ar­innar en þá verið vísað frá af meiri­hlut­an­um. Full­trúar minni­hlut­ans höfðu marg­sinnis lagt til að Mið­flokkur til­nefndi ein­hvern þeirra þriggja þing­manna flokks­ins sem ekki höfðu tekið þátt í sam­kom­unni á Klaustri,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Þá kemur fram að minni­hlut­inn hafi einnig ítrekað lagt til að for­manns­emb­ættið fær­ist til á næsta flokk í stjórn­ar­and­stöð­unni á meðan Mið­flokk­ur­inn leysir ekki úr sínum málum og lögðu því til að full­trúi Við­reisnar tæki við for­mennsku fyrir hönd minni­hlut­ans. Full­trúi Mið­flokks hafi hins vegar kosið að leggja til að for­mennska færi heldur til stjórn­ar­liða sem meiri­hlut­inn sam­þykkti.

„Við for­manns­skiptin lágu fyrir tvær til­lögur um emb­ætti for­manns, 1. vara­for­manns og 2. vara­for­manns. Fyrri til­lagan var borin upp af full­trúa Sam­fylk­ing­ar, Helgu Völu Helga­dótt­ur, en sú seinni frá full­trúa Mið­flokks­ins, Berg­þóri Óla­syni. Greidd voru atkvæði um hvert emb­ætti fyrir sig og í öllum til­fellum greiddu full­trúar stjórn­ar­flokk­anna þriggja, að Rósu Björk Brynj­ólfs­dóttur und­an­skil­inni, atkvæði með til­lögu Mið­flokks­ins sem fól í sér að öll emb­ættin færu til stjórn­ar­flokk­ana þriggja.

Afstaða hins nýja meiri­hluta liggur nú fyr­ir. Stjórn­ar­flokk­arnir nýta sér þær for­dæma­lausu aðstæður sem uppi eru og varða virð­ingu Alþingis og störf til að ganga á bak orða sinna varð­andi sam­komu­lag við stjórn­ar­and­stöð­una um skipt­ingu for­mennsku í nefnd­um,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent