Stjórnmálaflokkurinn Vinstrihreyfing- grænt framboð fagnar tuttugu ára afmæli sínu í ár en flokkurinn var stofnaður 6. febrúar 1999. Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og formaður flokksins, ræddi þessi tímamót í Morgunvaktinni á Rás 1 í morgun. Katrín gekk til liðs við flokkinn árið 2002 en hún segir sögu flokksins samofna miklum umbrotatímum í íslensku flokkakerfi. Hún segir flokkinn hafa dregið lærdóm bæði af því að vera í ríkisstjórn og í stjórnarandstöðu. Hún segir það jafnframt mikilvægt að á þessum umbrotatímum, þar sem flokkar komi og fari jafnvel hratt, að fólk sé meðvitað um að flokkar hangi á fólkinu sem eru í þeim.
„Síðan er það líka mikilvægt af því við erum á svo miklum umbrotatímum, höfum síðan nýja flokka koma og jafnvel fara aftur tiltölulega hratt. Að við séum meðvituð um það að stjórnmálaflokkar eru organískir. Þeir hanga á fólkinu sem er í þeim. Örlög þeirra skapast af fólkinu en ekki öfugt.“ segir Katrín.
Gjörbreytt samfélagsumræða á síðustu 20 árum
Katrín segir að þó að tuttugu ár virðist kannski ekki hár aldur fyrir stjórnmálaflokk, þá sé þetta þó ágætlega hár aldur flokks í flokkakerfinu í dag. Hún segir að í raun hafi flokkurinn aldrei siglt lygnan sjó og muni sennilega aldrei gera það, enda hafi flokkurinn verið til á miklum umbrotatímum í íslensku flokkakerfi. Þvert á spár fékk flokkurinn sex þingmenn kjörna í sínum fyrstu þingkosningum árið 1999. Flokkurinn var í stjórnarandstöðu í tíu ár en flokkurinn fór í fyrsta sinn í ríkisstjórn árið 2009. Katrín segir að þá hafi ákveðin eðlisbreyting orðið á flokknum, þannig hafi flokkurinn þurft að gera erfiðar málamiðlanir og sú breyting hafi að hennar mati haft varanleg áhrif á flokkinn.
Aðspurð segir hún að innanflokksátök hafi verið erfið. „En það góða við þau er að þau hafa verið mjög fyrir opnum tjöldum og á yfirborðinu. Að sumu leyti held ég að það sé hollt. Ég er ekki endilega að mæla með innanflokksátökum og alls ekki átakanna vegna en það er betra að þau séu uppi á borðum og ekki bak við tjöldin.“
Ennfremur bendir Katrín á að flokkurinn hafi lært mikið af því að hafa verið bæði í stjórnarandstöðu og í ríkisstjórn, en þannig hafi flokkurinn í raun kynnst öllum fletum Alþingis. „Nú þegar við stöndum á 20 ára afmæli þá er ég nokkuð viss um líka að næstu tíu ár verði ekki eins og þau síðustu,“ segir Katrín
Ríkisstjórnin er pólitísk nýsköpun
Nú er flokkurinn í ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokknum og Framsóknarflokkum og situr formaður flokksins í forsætisráðherrastól í fyrsta skipti. Katrín segir í viðtalinu að það hafi verið fyrirséð að ríkisstjórnin yrði flókin. „Að einhverju leyti er þetta það sem ég kalla pólitísk nýsköpun sem sprettur upp úr mjög óvenjulegum aðstæðum og hefði kannski ekki orðið til undir öðrum kringumstæðum. En heilt yfir þá hefur þetta ríkisstjórnarsamstarf gengið vel og ég held að það séu allir mjög metnaðarfullir í því að það takist vel einmitt vegna þess hve óvenjuleg ríkisstjórnin er“
Katrín segir jafnframt að hún hafi lært mikið af því að vera í ríkisstjórn eftir hrun og að þeir tímar hafi í raun verið mun erfiðari til að sitja í ríkisstjórn. „En síðan er það bara þannig að þau örlög hlotnuðust mér að fá að taka þátt í ríkisstjórninni 2009 til 2013 og þegar ég lít yfir sviðið frá því ég steig inn á þetta pólitíska svið þá voru það auðvitað miklu erfiðari tímar til að sitja í ríkisstjórn. Ég held hins vegar að bara að einhverju leyti líka alveg gjörbreytt samfélagsumræða á þessum 20 árum sem VG hefur verið til hefur líka gert það að verkum að það er aldrei auðvelt verkefni að sitja í ríkisstjórn. Og kannski á það ekki að vera það.“