Landsréttur hefur staðfest niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur og vísað frá kröfum fyrirtækjanna Akurholt og Geiteyrar, sem eru veiðiréttarhafar í Haffjarðará, á hendur Arnarlaxi, Matvælastofnun og Umhverfisstofnun. Veiðiréttarhafarnir höfðu krafist þess að starfs- og rekstrarleyfi Arnarlax í Arnarfirði yrði ógilt. Niðurstaða Landsréttar er endanleg niðurstaða dómstóla, samkvæmt Kristínu Edwald hæstaréttarlögmanni sem flutti málið fyrir hönd Arnarlax.
Veiðiréttarhafarnir hafi ekki orðið fyrir tjóni af starfsemi Arnarlax
Héraðsdómur Reykjavíkur féllst, þann 18. janúar síðastliðinn, á kröfur Arnarlax, Matvælastofnunar og Umhverfisstofnunar og vísaði frá kröfum fyrirtækjanna Akurholts og Geiteyrar. Í niðurstöðu Héraðsdóms kom fram að kröfur veiðiréttarhafanna miðuðu að því að fá dóm sem legði bann við að laxeldi í sjókvíum væri stundað á Íslandi. Vísaði dómurinn til þess að löggjafinn og stjórnvöld hefðu um áratugaskeið tekið með í reikninginn áhrif fiskeldis á náttúrulega laxastofna í veiðiám á Íslandi, við ákvarðanatöku um hvort og á hvern hátt og í hversu miklum mæli fiskeldi skyldi heimilað. Í dóminu kom einnig fram að staðbundin áhrif starfsemi Arnarlax nái ekki til þess hafsvæðið þar sem Haffjarðará rennur til sjávar og er því niðurstaða dómsins sú að veiðiréttarhafarnir hafi ekki orðið fyrir tjóni vegna starfseminnar. Veiðiréttarhafarnir kærðu umrædda niðurstöðu Héraðsdóms til Landsréttar.
Arnarlax sendi frá sér fréttatilkynningu í dag þar sem greint er frá niðurstöðu Landsréttar. Í tilkynningunni segir að niðurstaða Landsréttar byggir á því að veiðiréttarhafarnir sem kröfðust ógildingar leyfa Arnarlax hefðu ekki lögvarða hagsmuni af að fá dóm umkröfur sínar. „Niðurstaða íslenskra dómstóla er því sú að veiðiréttarhafarnir hafi ekki orðið fyrir tjóni af starfsemi Arnarlax og að þeir hafi ekki sýnt fram á að starfsemin skapaði hagsmunum þeirra sérstaka hættu,“ segir Kristín Edwald hæstaréttarlögmaður sem flutti málið fyrir hönd Arnar Lax.
Jafnframt segir í tilkynningunni að til viðbótar því að hafa þurft að greiða sinn eigin lögmannskostnað þurfa veiðiréttarhafarnir einnig að greiða málskostnað Arnarlax, Matvælastofnunar og Umhverfisstofnunar, bæði fyrir héraðsdómi og Landsrétti.