Stéttarfélögin fjögur lýsa yfir „reiði og sárum vonbrigðum“ með tillögur ríkisstjórnar

Verkalýðsfélögin sem leitt hafa kjaraviðræður segja að tillögur stjórnvalda sem kynntar voru í dag geri vonir um að aðkoma stjórnvalda gæti hleypt glæðum í kjaraviðræður, að engu.

Ragnar Þór Ingólfsson Sólveig Anna Jónsdóttir og Vilhjálmur Birgisson skrifa öll undir yfirlýsinguna.
Ragnar Þór Ingólfsson Sólveig Anna Jónsdóttir og Vilhjálmur Birgisson skrifa öll undir yfirlýsinguna.
Auglýsing

VR, Efl­ing, Verka­lýðs­fé­lag Akra­ness og Verka­lýðs­fé­lag Grinda­víkur lýsa reiði og sárum von­brigðum með þær til­lögur sem rík­is­stjórnin lagði fram á fundi með for­seta og vara­for­setum Alþýðu­sam­bands Íslands í dag.

Þetta kemur fram í sam­eig­in­legri yfir­lýs­ingu. frá þeim. Þar segir að við­ræður hafi staðið tæpt eftir að Sam­tök atvinnu­lífs­ins hefðu lagt fram til­boð í síð­ustu viku sem leitt hefði til kaup­mátt­arrýrn­unar fyrir stóra hópa launa­fólk. Sam­tök atvinnu­lífs­ins hefðu í kjöl­farið hafnað það sem félögin töldu vera sann­gjarnt gagntil­boð.

„Vonir stóðu til að aðkoma stjórn­valda gæti hleypt glæðum í við­ræð­ur. Ljóst er að til­lögur stjórn­valda gera þær vonir að engu. Fundað verður í bak­landi stétt­ar­fé­lag­anna á næstu sól­ar­hringum og á fimmtu­dag funda for­menn félag­anna með SA hjá Rík­is­sátta­semj­ara. Sam­flots­fé­lögin standa sam­einuð og stað­föst í kröf­unni um að launa­fólk geti lifað af launum sínum og að stjórn­völd geri löngu tíma­bærar kerf­is­breyt­ingar í rétt­læt­isátt,“ segir enn fremur í yfir­lýs­ing­unni sem er und­ir­rituð af for­mönnum allra stétt­ar­fé­lag­anna fjög­urra.

Auglýsing

Til­lögur rík­is­stjórn­ar­inn­ar, sem sný­ast um hús­næð­is­mál, félags­lega kerfið og skatta­mál, verða kynntar síðar í dag.

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­mála­ráð­herra, Katrín Jak­obs­dótt­ir for­­sæt­is­ráð­herra, Sig­­urður Ingi Jó­hanns­­son, sam­göngu- og sveit­­ar­­stjórn­­­ar­ráð­herra og Ásmund­ur Ein­ar Daða­son, fé­lags- og barna­­mála­ráð­herra kynntu þær fyrir for­ystu­mönnum vinnu­mark­að­ar­ins á fundum fyrr í dag.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent