Stjórnmálaflokkarnir átta sem eiga fulltrúa á Alþingi hafa tekið sig saman og efnt til metoo-morgunverðarfundar á Grand Hótel Reykjavík mánudaginn 18. mars. Athygli vekur að Miðflokkurinn er hluti af hópnum en flokkurinn hefur legið undir ámælum vegna klaustursmálsins. Samkvæmt sameiginlegri fréttatilkynningu frá flokkunum er fundurinn boðaður í kjölfar #metoo byltingarinnar en yfirlýst markmið fundarins er að ræða metoo og stjórnmálin.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra mun opna fundinn með ávarpi og framkvæmdastjóri Alþjóðaþingmannsambandsins mun halda erindi um niðurstöður rannsóknar á kynferðisofbeldi og áreiti innan þjóðþinga Evrópu. Ragna Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar, mun síðan stýra pallborðsumræðum með fulltrúum allra flokka í kjölfar erindanna. Athygli er vakinn á því að fundurinn er opin öllum og án endurgjalds.
85 prósent þingkvenna hafa upplifað kynbundið, andlegt ofbeldi á þjóðþingum
Sérstakur gestur á morgunverðarfundinum verður Martin Chungong, framkvæmdastjóri Alþjóðaþingmannasambandsins (IPU). Hún mun kynna skýrslu um niðurstöður viðamikillar rannsóknar Alþjóðaþingmannasambandsins og Evrópuráðsþingsins á kynjamismunun og kynbundnu ofbeldi og áreiti gegn konum í þjóðþingum í Evrópu.
Í tilkynningunni segir að niðurstöður rannsóknarinnar séu sláandi þar sem 85 prósent þingkvenna sem tóku þátt í rannsókninni höfðu upplifað einhvers konar kynbundið, andlegt ofbeldi á þjóðþingum. Samkvæmt rannsókninni eru þingkonur undir 40 ára aldri eru líklegri til að verða fyrir áreiti og kvenkyns starfsmenn þinga verða frekar fyrir kynferðislegu ofbeldi en þingkonur.
Niðurstöðurnar sýna jafnframt að í flestum tilvikum skorti vettvang þar sem konur geta tjáð sig um ofbeldið sem þær verða fyrir. Skýrslan er sú fyrsta í röð svæðisbundinna rannsókna sem alþjóðasambandið stendur fyrir um kynbundið ofbeldi og áreiti gagnvart konum í þjóðþingum heims.