Afkoma Klappa grænna lausna á árinu 2018 var samkvæmt áætlun en rekstrartekjur félagsins voru 242 milljónir króna á síðasta ári miðað við 210 milljónir á árinu áður. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu sem send var út í dag. Klappir er fyrirtækjasamstæða sem þróar, selur og innleiðir hugbúnaðarlausnir á sviði umhverfismála.
EBITDA var jákvæð um 34 milljónir árið 2018 miðað við neikvæða upp á 13 milljónir króna á árinu 2017. Rekstrarhagnaður var 1,6 milljónir króna á árinu 2018 miðað við rekstrartap upp á 35 milljónir árið áður. Einnig kemur fram í tilkynningunni að starfsemi sé hafin erlendis og að búið sé að semja við ráðgjafafyrirtæki um hlutafjárútboð á þessu ári.
„Árið 2018 einkenndist af mikilli fjölgun viðskiptavina sérstaklega á seinni hluta ársins. Hugbúnaðarþróunin hefur gengið samkvæmt áætlun og er fyrirtækið komið með heildstætt vöruframboð í umhverfislausnum og lögfylgnilausnum fyrir skip, sem og lausnir fyrir flotastýringu bifreiða ásamt nýjum lausnum í rafrænni stjórnsýslu. Mikil áhersla lögð á það að undirbúa hugbúnaðarlausnir félagsins þannig að hægt væri að skala söluna hratt upp á erlendum mörkuðum. Unnið var að því að bæta sjálfbærni félagsins með markvissum hætti eins og sjá má í samfélagsskýrslu félagsins (e. Sustainability Report 2018) og samfélagsuppgjöri (e. ESG Statement 2018),“ segir í tilkynningunni.
Jafnframt kemur fram að auknar áherslur á umhverfismál og vilji íslenskra fyrirtækja, sveitarfélaga, hafna og stofnana til að takast á við umhverfismálin með markvissum hætti hafi orðið til þess umhverfishugbúnaður Klappa sé orðinn eftirsóttur og sé nú kominn í notkun hjá yfir 200 fyrirtækjum, sveitarfélögum og stofnunum á Íslandi.
Byggja upp samstarf við erlenda aðila
Félagið byrjaði að byggja upp samstarf við erlenda samstarfsaðila á árinu 2018. „Um tvenns konar samstarfsaðila er að ræða; annars vegar þá sem afmarka starfsemi sína við byggðalög, lönd eða svæði (e. Regional Partners) og hins vegar þeir sem vinna á alþjóðamörkuðum þvert á landamæri og heimshluta (e. Global Industrial Partners). Ljóst er að mikill áhugi er á hugbúnaðarlausnum Klappa og fer eftirspurnin vaxandi.“
Klappir grænar lausnir hefur gert samstarfssamning við breska fyrirtækið ChartCo Ltd sem er fyrirtæki í hugbúnaðarþjónustu við útgerðir kaup- og skemmtiferðaskipa um heim allan.
„Samstarfssamningurinn kveður á um samstarf um sölu og dreifingu sérhæfðra lausna Klappa fyrir skip og flota. Chartco er þegar byrjað að markaðsfæra og selja lausnir Klappa en fyrsta stóra erlenda skipafélagið ákvað í desember að setja hugbúnað Klappa í eigin skipaflota. Einnig fékk Klappir fánaríkissamþykki hjá næststærsta fánaríki heims, Marshall eyjum og önnur fánarískissamþykki eru langt komin. Fánaríkissamþykki gerir notendum kleift að nota lausnir Klappa í lögformlegum tilgangi. Fyrir dyrum stendur að finna einnig samstarfsaðila í öðrum greinum á borð við vöruflutninga á landi og flugrekstur.
Þjónusta sem boðin er svæðisbundið verður byggð upp í sem mestu samstarfi við heimamenn þannig að árangur náist sem fyrst. Fyrirhuguð er markviss og hröð uppbygging svæðisbundinnar þjónustu í Evrópu en þegar hefur verið stofnsett dótturfélag í Litháen til að selja og dreifa umhverfislausnum Klappa þar í landi og einnig í baltnesku löndunum. Reynslan af starfsemi Klappa í Litháen verður lögð til grundvallar á uppbyggingunni í nærliggjandi löndum. Klappir mun þurfa að fjárfesta markvisst í uppbyggingu á samstarfsneti alþjóðlegra samstarfsaðila sem vinna ýmist á mörkuðum atvinnugreina eða svæðum,“ segir í tilkynningu félagsins.
Enn fremur kemur fram að félagið hafi undirritað samkomulag við Centra fyrirtækjaráðgjöf um umsjón með útboði á hlutafé í Klöppum síðar á þessu ári. Tilgangur útboðsins sé að styrkja félagið við útbreiðslu og dreifingu á hugbúnaðarlausnum þess á alþjóðamörkuðum.