Starfsemi Klappa vex

Afkoma Klappa grænna lausna á árinu 2018 var samkvæmt áætlun en rekstrartekjur félagsins voru 242 milljónir króna á síðasta ári miðað við 210 milljónir á árinu áður.

Klappir grænar lausnir - Mynd: Klappir
Auglýsing

Afkoma Klappa grænna lausna á árinu 2018 var sam­kvæmt áætlun en rekstr­ar­tekjur félags­ins voru 242 millj­ónir króna á síð­asta ári miðað við 210 millj­ónir á árinu áður­. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá félag­inu sem send var út í dag. Klappir er fyr­ir­tækja­sam­stæða sem þró­ar, selur og inn­leiðir hug­bún­að­ar­lausnir á sviði umhverf­is­mála.

EBITDA var jákvæð um 34 millj­ónir árið 2018 miðað við nei­kvæða upp á 13 millj­ónir króna á árinu 2017. Rekstr­ar­hagn­aður var 1,6 millj­ónir króna á árinu 2018 miðað við rekstr­ar­tap upp á 35 millj­ónir árið áður. Einnig kemur fram í til­kynn­ing­unni að starf­semi sé hafin erlendis og að búið sé að semja við ráð­gjafa­fyr­ir­tæki um hluta­fjár­út­boð á þessu ári.

„Árið 2018 ein­kennd­ist af mik­illi fjölgun við­skipta­vina sér­stak­lega á seinni hluta árs­ins. Hug­bún­að­ar­þró­unin hefur gengið sam­kvæmt áætlun og er fyr­ir­tækið komið með heild­stætt vöru­fram­boð í umhverf­is­lausnum og lög­fylgni­lausnum fyrir skip, sem og lausnir fyrir flota­stýr­ingu bif­reiða ásamt nýjum lausnum í raf­rænni stjórn­sýslu. Mikil áhersla lögð á það að und­ir­búa hug­bún­að­ar­lausnir félags­ins þannig að hægt væri að skala söl­una hratt upp á erlendum mörk­uð­um. Unnið var að því að bæta sjálf­bærni félags­ins með mark­vissum hætti eins og sjá má í sam­fé­lags­skýrslu félags­ins (e. Susta­ina­bility Report 2018) og sam­fé­lags­upp­gjöri (e. ESG Statem­ent 2018),“ segir í til­kynn­ing­unni.

Jafn­framt kemur fram að auknar áherslur á umhverf­is­mál og vilji íslenskra fyr­ir­tækja, sveit­ar­fé­laga, hafna og stofn­ana til að takast á við umhverf­is­málin með mark­vissum hætti hafi orðið til þess umhverf­is­hug­bún­aður Klappa sé orð­inn eft­ir­sóttur og sé nú kom­inn í notkun hjá yfir 200 fyr­ir­tækj­um, sveit­ar­fé­lögum og stofn­unum á Íslandi.

Auglýsing

Byggja upp sam­starf við erlenda aðila

Félagið byrj­aði að byggja upp sam­starf við erlenda sam­starfs­að­ila á árinu 2018. „Um tvenns konar sam­starfs­að­ila er að ræða; ann­ars vegar þá sem afmarka starf­semi sína við byggða­lög, lönd eða svæði (e. Reg­ional Partners) og hins vegar þeir sem vinna á alþjóða­mörk­uðum þvert á landa­mæri og heims­hluta (e. Global Industrial Partner­s). Ljóst er að mik­ill áhugi er á hug­bún­að­ar­lausnum Klappa og fer eft­ir­spurnin vax­and­i.“

Klappir grænar lausnir hefur gert sam­starfs­samn­ing við breska fyr­ir­tækið ChartCo Ltd sem er fyr­ir­tæki í hug­bún­að­ar­þjón­ustu við útgerðir kaup- og skemmti­ferða­skipa um heim all­an.

„Sam­starfs­samn­ing­ur­inn kveður á um sam­starf um sölu og dreif­ingu sér­hæfðra lausna Klappa fyrir skip og flota. Chartco er þegar byrjað að mark­aðs­færa og selja lausnir Klappa en fyrsta stóra erlenda skipa­fé­lagið ákvað í des­em­ber að setja hug­búnað Klappa í eigin skipa­flota. Einnig fékk Klappir fána­rík­is­sam­þykki hjá næst­stærsta fána­ríki heims, Mars­hall eyjum og önnur fánarískis­sam­þykki eru langt kom­in. Fána­rík­is­sam­þykki gerir not­endum kleift að nota lausnir Klappa í lög­form­legum til­gangi. Fyrir dyrum stendur að finna einnig sam­starfs­að­ila í öðrum greinum á borð við vöru­flutn­inga á landi og flug­rekst­ur.

Þjón­usta sem boðin er svæð­is­bundið verður byggð upp í sem mestu sam­starfi við heima­menn þannig að árangur náist sem fyrst. Fyr­ir­huguð er mark­viss og hröð upp­bygg­ing svæð­is­bund­innar þjón­ustu í Evr­ópu en þegar hefur verið stofn­sett dótt­ur­fé­lag í Lit­háen til að selja og dreifa umhverf­is­lausnum Klappa þar í landi og einnig í balt­nesku lönd­un­um. Reynslan af starf­semi Klappa í Lit­háen verður lögð til grund­vallar á upp­bygg­ing­unni í nær­liggj­andi lönd­um. Klappir mun þurfa að fjár­festa mark­visst í upp­bygg­ingu á sam­starfs­neti alþjóð­legra sam­starfs­að­ila sem vinna ýmist á mörk­uðum atvinnu­greina eða svæð­u­m,“ segir í til­kynn­ingu félags­ins.

Enn fremur kemur fram að félagið hafi und­ir­ritað sam­komu­lag við Centra fyr­ir­tækja­ráð­gjöf um umsjón með útboði á hlutafé í Klöppum síðar á þessu ári. Til­gangur útboðs­ins sé að styrkja félagið við útbreiðslu og dreif­ingu á hug­bún­að­ar­lausnum þess á alþjóða­mörk­uð­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent